Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 39
SKINFAXI
39
Héraðsþing Skarphéðins.
Hið árlcga héraðsþing Skarpliéðins var lialdið i Hveragerði
20.—21. janúar síðastliðinn. Þingið sóttu um 60 fulltrúar frá
22 félögum á sambandssvæðinu. Eru þingin jafnan svo fjöl-
menn og hin myndarlegustu i hvívetna. Margir gestir sóttu
þingið, þar á meðal Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi, Daniel
Ágústínusson, ritari U. M. F. í. og Ingimar Jóhannesson kenn-
ari, sem vinnur að 40 ára sögu sambandsins.
Þingið gerði margvíslegar samþykktir t. d. i iþróttamáium.
löggæzlumálum héraðsins, sjúkrahúsmálum, skógræktarmálum,
áfengismálum, vinnukeppni og ýmsum félagsmálum. Meðal
samþ. var þessi:
„Héraðsþing Skarphéðins lítur svo á, að vinnan hafi á und-
anförnum árum ekki notið þeirrar virðingar meðal þjóðarinn-
ar sem vert er og framvegis beri að taka meira tillit til vinnu-
afkasta og verkhæfni einstaklingsins, en nú á sér stað.
Þingið lýsir því ánægju sinni yfir framkominni tillögu á
sambandsráðsfundi U.M.F.I. um vinnukeppni á borð við það,
sem tíðkist erlendis svo sem í Svíþjóð.
Þingið felur stjórn sambandsins að leita samstarfs við Bún-
aðarfélag Suðurlands um að vinnukeppni fari fram sem fyrst
t. d. í sambandi við væntanlega landbúnaðarsýningu á Suður-
landi.
Til greina gæti komið keppni í mjöltum, járningu hesta,
akstri dráttarvéla og hæfni í að dæma búfé.
Þingið beinir því til Umf. á sambandssvæðinu, að þau vinni
að þessum málum eftir beztu getu, hvert á félagssvæði sínu.“
Gamlir áskrifendur Skinfaxa,
án milligöngu Umf. eða félagar, sem flutt hafa burtu af
félagssvæði sínu, liafa fengið sendar póstkröfur fyrir áskrifta-
gjöldum síðustu árin. Verður þeim væntanlega vel tekið og
innleystar fljótlega. Ekki er unnt að senda árlega póstkröfu
fyrir aðeins kr. 10.00, svo gera má ráð fyrir að þær verði
sendar á 2—3 ára fresti.
Norrænt æskulýðsmót.
Undanfarin ár hafa Umf. á Norðurlöndum lialdið norrænt
æskulýðsmót til skiptis í Danmörku, Finnlandi, Sviþjóð og Nor-
egi. Hafa fulltrúar frá U.M.F.f. sótt mót þessi og greinar um
þau birzt í Skinfaxa.
í sumar verður norræna æskulýðsmótið haldið í lýðháskól-
anum í Elverum dagana 19.—25. júli. Ritari norsku ungmenna-