Skinfaxi - 01.04.1951, Page 11
SIÍINFAXI
11
Kort yfir ferfSasvæSið.
var að vísu misvel ríðandi. En á góðum vegi i glöðum
hópi verða allt reiðhestar, og hver maður og kona finn-
ur eitthvað yndi af hinni „lifandi vél undir söðulsins
þófum.“ Þeir, sem ríkir eru af góðhestum, skjóta líka
stundum gæðingi undir hina, sem fátækari eru af þeim
verðmætum lífsins.
Ekki var gestrisnin skilin við okkur enn, því þegar
að Hausthúsum kom, voru dúkuð borð og framreitt
miðdegiskaffi handa öllum hópnum. Sprett var af
öllum reiðtygjum, og hrossum sleppt lausum í girð-
ingu við túnið, og þakksamlega setzt að hinum fram-
hoðnu veitingum.
I Hausthúsum hjuggu um nær hálfrar aldar skeið
Kristrún Ketilsdóttir og Jón Þórðarson, og gerðu garð-
inn frægan með miklum framkvæmdum í ræktun og
húsabótum og frábærri gestrisni og greiðasemi við alla.
Nú eru þau flutt til Reykjavikur fyrir fáum árum, þrot-
in að kröftum. — En hinir nýju húsbændur virðast