Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1951, Page 13

Skinfaxi - 01.04.1951, Page 13
SKINFAXI 13 hélt hver heim til sín glaður og ánægður. — Ekki siður ánægður en af balli, jafnvel þótt dansað hefði verið í deyfðu ljósi. Nú horfir svo við í mörgum sveitum, að hesturinn, þessi orku- og gleðigjafi sveitalífsins, láti gersamlega í minni pokann fyrir véltækninni. 'Skal ég ekki lasta það, hvað snertir drátt og baggaburð. En fari svo, að notlcun reiðhestsins verði, er tímar líða, aðeins fortið- arminning gamalla sveitamanna, og að lokum sagn- fræðilegt atriði, þá er höggvinn i sundur einn af þehn þáttum, sem tengir æskufólkið dreifbýlinu, og ekki sá lélegasti. Og mikill yndisauki er horfinn sveitalifinu með brotthvarfi góðhestsins, og meir en vafasamt, að hin dauða vél geti bætt það tjón að fullu. I einu er þó fylgt gamalli venju með hestinn víða í sveitum landsins. En það er með hinni öryggislausu útigöngu hrossanna. Og seint ætla íslenzkir bændur að byrja á að þurrka af sér þann smánarblett, þvi hann virðist einmitt stækka og dökkna eftir því, sem menn- ing og velmegun vex. En þetta allt saman er önnur saga og tilheyrir ekki minni frásögn, af útreiðum unga fólksins. — En „Væri’ ekki gaman að vaxa’ upp á ný og vera’ á þeim gullaldardögum,“ þegar enginn bóndi á fleiri hross en svo, að hann get- ur auðveldlega hýst þau og fóðrað, þegar harðnar að, og það svo að meira sé en nafnið tómt. Og hver maður og kona í sveit, sem löngun hefur til, liefur efni og aðstöðu til að eiga sér gæðing, gera honum vel, og gleðja sig þar við, enda þótt hraðskreiðari — og fleyg- ari farartæki séu notuð jafnframt. Og má maður ekki hugsa svo djarft, að gera ráð fyrir, að þeir tímar renni upp yfir búandlýð íslenzkra sveita, og það heldur fyrr en síðar?

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.