Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 18
18
SKINFAXI
Gróðurlnisin í Krýsuvík.
A. Gróðurhús.
Vegna jarðhitans eru skilyrði til ræktunar í gróður-
húsum ótakmörkuð í Krýsuvík. Nú eru gróðurhúsin
orðin fjögur, og eru ca. 1600 ferm. undir gleri. Tvö
þessara gróðurhúsa (600 ferm.) voru tekin í notkun
vorið 1949, en hin tvö er verið að ljúka við. 1 gróður-
húsunum eru einkum ræktaðir tómatar, agúrk-
ur, gulrætur og blóm. 1 sambandi við gróðurhúsin er
auk þess hálfur helctari útiræktar, þar sem gert er ráð
fyrir að rækta alls konar grænmeti. Jarðhitinn, sem
gróðurhúsin eru hituð með, er gufa, og er hún leidd
í þró, þar sem katli hefir verið komið fyrir, og hitar
gufan þannig vatnið í hitakerfi gróðurhúsanna, en það
er venjulegt miðstöðvarkerfi.
1 sambandi við gróðurhúsin hafa verið reist tvö i-
búðarhús, ca. 360 ferm. að grunnflatarmáli, fyrir bú-
stjóra og starfsfólk. Eru í húsunum öll þægindi, vatns-
leiðsla, skólpræsi og rafmagn frá dieselrafstöð.