Skinfaxi - 01.04.1951, Qupperneq 24
24
SKINFAXI
Breiðahlik —
félagsheimili IViiklaholtshrepps
er sjálfstæð stofnun, byggt af fé frá sveitarsjóði Miklaholts-
hrepps, kvenfélaginu „Liljan“ og Iþróttafélagi Miklaholts-
hrepps og vinnuframlögum flestra eða allra vinnufærra manna
í sveitinni. Auk þess hefur það notið styrks úr félagsheimila-
sjóði. Bygging þessi var hafin í septembermánuði 1946, en
húsið vígt og tekið til fullra afnota 17. júní 1950.
Aðalsalur hússins er 16X7 m. Leiksvið er í suðurenda, að
stærð 7X8 m. Undir leiksviði er veitingastofa og eldhús. Auk
þessa eru í útúrbyggingu við hlið leiksviðsins forstofur, fata-
geymsla, snyrtiherbergi og bókastofa. Húsið er hitað með olíu-
kynntri miðstöð. f því er sjálfrennandi vatn, og raflýst er
það frá diesilmótorstöð. Kvikmyndavél er og í húsinu. Bygg-
ingin kostaði um kr. 300 þús.
Mikill einhugur var hjá því fólki — íbúum Miklaholtshrepps
— er stóð að byggingunni og margur maður vann þar gott starf.
Þegar húsið var vígt, voru viðstaddir nær allir íbúar sveitar-
innar — jafnt ungir sem gamlir, auk nokkurra gesta, eða
alls um 170—180 manns.
Var þá saineiginlegt borðhald í samkomusalnum. Helgi Pét-
ursson, formaður byggingarnefndar, skýrði frá gangi bygging-
arinnar og afhenti húsið til afnota í hendur húsnefndar, en
l'ormaður hennar, Eiður Sigurðsson oddviti, þakkaði bygg-
ingarnefnd hennar starf.
Alexander Guðbjartsson, Stakkhamri, rakti félagsmálaþróun
sveitarinnar síðustu árin. Gunnar Guðbjartsson mælti fyrir
minni íslands. Auk þessara töluðu Ingibjörg Guðmundsdóttir,
formaður kvenfélagsins og Páll Pálsson, hreppstjóri, Þúfum í
Vatnsfirði, sem var gestur á samkomunni.
Kirkjukór Fáskrúðarbakkakirkju söng nokkur lög og nokkrir