Skinfaxi - 01.04.1951, Síða 38
38
SKINFAXI
FRÉTTIR
Nýtt Umf.
Umf. Breiðablik var stofnaS á síðasta ári i Ivópavogshreppi
við Reykjavík. Gekk það í U.M.S. Kjalarnesþings. Félagar eru
105. Stjórn félagsins skipa: Magnús Óskarsson, Iíópavogi, for-
maður, Gestur Guðnnindsson ritari, Guðmundur Guðmundsson
gjaldkeri, Þórdis Kristjánsdóttir varaformaður og Ingvar Agn-
arsson meðstjórnandi.
Helztu verkefni félagsins eru, auk almennrar félagsstarf-
semi, bygging félagsheimilis, ásamt öðrum félögum i byggðar-
laginu, íþróttavallargerð, enda mun félagið starfa verulega að
íþróttamálum.
Kjartan Jóhannesson
söngkennari frá Ásum kenndi söng' framan af í vetur hjá
nokkrum Umf. í Héraðssambandinu Skarphéðni og Umf. Kára
Sölmundarsyni, Dyrhóiahreppi, Mýrdal, að tilhlutun U.M.F.Í.
Er hin mesta ánægja með starfsemi Kjartans lijá félaginu.
Fleiri áskrifendur.
Aukin áskriftasöfnun að Skinfaxa stendur nú yfir i ung-
mennafélögunum og liefur mörgum félögum orðið þar vel á-
gengt. Eins og nú standa sakir er aukningin mest hjá Umf.
Samhygð, Gaulverjabæjarhreppi. Kaupendum þar hefur fjölg-
að úr 18 i 30 eða um 67% og Umf. Tindastóli, Sauðárkróki, en
þar hefur þeim fjölgað úr 20 i 30 eða 50%. Hvaða féiög bæta
metið næst?
Flestir kaupendur i einstökum félögum eru i Umf. Drengur
í Kjós 44 og Umf. Hrunamanna 34. Hafa þeir verið þetta marg-
ir frá þvi áskriftasöfnun var tekin upp 1944. Allmörg félög
eru með um 30 kaupendur.
megi líkjast þjóðhetju olckar i bjartsýni og trú á framtiðina
og fórnfúsri lund til að vinna hugsjónum og frelsi gagn, þá
megum við líta björtum vonaraugum fram á veginn. Þvi „i
djúpi andans duldir kraftar biða.“
Þá munu i musterum íslenzku þjóðarinnar loga helgar stjörn-
ur, er vísa henni veg allrar framtíðar.
íslandi allt!