Skinfaxi - 01.07.1952, Qupperneq 8
56
SKINFAXI
inn betur en hann sjálfur í einu kvæða sinna. — En
þar segir hann svo:
„Þó þú langförull legðir
sérhvert land undir fót,
bera hugur og hjarta
samt þíns heimalands mót,
frænka eldfjalls og íshafs
sifji árfoss og hvers,
dóttir langholts og lyngmós,
sonur landvers og skers.
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd,
skreyta fossar og fjallshlíð
öll þín framtíðar lönd.
Fjarst í eilifðar útsæ
vakir eylendan þín:
nóttlaus voraldar veröld,
þar sem viðsýnið skín.“
Þarna er á listrænan hátt, lýst þránni til föðurtúna,
sem er samgróin eðli hvers góðs drengs. Menn þrá ætt-
land sitt og átthaga, þótt þar sé fátækara og fáskrúð-
ugra að annarra dómi, en í dvalarlandinu. Islendingur-
inn þráir heiðlöndin og dalina, háfjöllin og hafið.
Hver er hann þá þessi maður, sem ég tel mig svo ham-
ingjusaman að hafa séð? Ytri lifssaga hans er fábrot-
in. — Hann er fæddur að Kirkjuhóli í Skagafirði, hinn
3. okt. 1853, en dáinn á heimili sínu í Ameríku 10. ágúst
1927. — Þá næstum 74 ára gamall 10 árum eftir að
lionum auðnaðist að heimsækja ættland sitt. — Æsku-
ár sín dvelur hann á ýmsum stöðum í Skagal'irði og
Þingeyjarsýslu, en 19 ára gamall flytur hann íil Amer-
íku með foreldrum sínum. Faðir hans er þá tekinn að
lýjast og stritið við landnámið lenti mest á drengnum,