Skinfaxi - 01.07.1952, Side 11
SKINFAXI
59
þótt ljóð Stephans væi’u góð, þá væru þau aðeins brot
af honum sjálfum. — Mér er enn í minni veðurbitna
skarpleita andlitið með augunum fögru. - Mér er hann
enn í minni, þar sem hann sat, sæll og glaður, meðal
Ungmenna Íslands í boði þeirra. Fá af þessum ungu
vinum þekkti hann persónulega og þeir liöfðu aðeins
kynnzt honum í ljóðmn hans, en hann tók hressilega i
hönd þeirra, þúaði alla og liafði lag á því að þakka öll
minni og lofræður með einni snjallri setningu eða stuttri
tölu, en þannig, að öllum fannst að svona hefði átt að
segja þetta en öðruvísi ekki.--------
Ég skil það enn þá betur nú, að þetta kvöld hef
ég setið að borði með einum göfugasta syni vorrar gáf-
uðu íslenzku þjóðar.---------
Ég get ekki endað þessi fáu orð mín, án þess að minna
á það, að það voru æskumenn Islands, sem áttu frum-
kvæði að því, að þessi fjarlagi sonur Islands fékk að sjá
sitt kæra föðurland.
Tillagan um heimboðið birtist fyrst í blaði U.M.F.I.
Skinfaxa, og ákvörðun um heimboðið er tekin á ung-
mennafélagsfundi af fátækum bjartsýnum ungmenn-
um. Æskan er heppin, þegar henni auðnast að hrinda í
framkvæmd góðum málum. — Það gerðu ungmenna-
félagar Islands árið 1917, er þeir áttu frumkvæði að
heimboði Stephans G.
Bók ungmennafélaga.
Ungmennafélag íslands hefur útvegað nokkur eintök af bók
Jens Marinus Jensen, Ad nordlige Veje, sem segir frá starfsemi
ungmennafélaga á Norðurlöndum og heimsókn til peirra allra.
Þar er skemmtilegur þáttur um ferð höfundar til íslands sum-
arið 1949 og U.M.F.Í. Verð bókarinnar er kr. 25.00 ísl. auk
kostnaðar við póstsendingu. Ungmennafélagar, sem hug hafa
á að eignast þessa bók, ættu að skrifa eftir henni sem fyrst
til U.M.F.f.