Skinfaxi - 01.07.1952, Page 12
(50
SKTNFAXI
íslenzk skáld og rithöfundar V.
TÓMAS GUÐMUIVDSSOK
Síðan ljóðabók Tómasar Guðmundsson-
ar, Fagra veröld, kom út haustið 1933,
mun hann almennt talinn listhagast Ijóð-
skáld meðal samtíðarmanna sinna. Enda
skipaði sú bók honum þegar sæti meðal
þjóðskálda.
Það, sem einkum einkennir skáldskap
Tómasar Guðmundssonar er frábær form-
fegurð, samfara einfaldri og ljósri fram-
setning þess, sem honum býr í brjósti
hverju sinni. Ljóð lians eru gædd mikilli
tómas guðmundssdn lífsgleði og sérkennilegri kýmni, þótt und-
irstraumurinn sé einatt alvarlegur og
saknaðarhreimur í röddinni, þegar skáldið minnist hinnar
frjálsu æskuára, sem þó gefa að öðrum þræði ástæðu til glaðra
og góðra minninga. Hann gleðst innilega yfir því, sem er fag-
urt í mannlífinu, en beitir góðlátlegu skopi gagnvart því, er
honum finnst miður um. Tómas hefur verið réttnefndur skáld
Reykjavíkur, því að lífið í höfuðborginni hefir orðið honum
tíðara yrkisefni en öðrum skáldum þannig, að hann hefur
brugðið rómantízkum blæ yfir hversdagslega hluti borgarinn-
ar og atvik hennar. Enda þótt flest ljóðin í Fögru veröld væru
helguð lífinu í Reykjavík, voru efniviðir í ýms þeirra á fjar-
lægari fjörur sóttir, eins og t. d. Japanskt ljóð, eitt bezt gerða
lýriskt Ijóð á íslenzka tungu.
Tómas Guðmundsson er fæddur 6. janúar 1901 að Efri-Brú
í Grímsnesi, bóndasonur. Hann varð stúdent 1921 og lauk em-
bættisprófi í lögfræði 1926. Var málflutningsmaður í Reykja-
vík 1926—-1929. Aðstoðarmaður í Hagstofu íslands 1928 til árs-
loka 1943. Var ritstjóri tímaritsins Helgafells, ásamt Magnúsi
Ásgeirssyni, 1942—1946. Formaður í Rithöfundafélagi íslands
og Bandalagi ísl. listamanna um skeið.
Eftir T. G. hafa komið út þessar ljóðabækur: Við sundin
blá (1925; II. útg. 1950). Fagra veröld (nóv. 1933; II. útg.
des. ’33; III. útg. des. ’34; IV. útg. sept. ’46). Stjörnur vorsins
(1940). Fljótið helga (1950). Ljóðabókin Fagra veröld hefur
komið út í franskri þýðingu, lítið eitt stytt. Auk þess hafa
ljóð Tómasar verið þýdd á Norðurlandamálin, ensku og þýzku.
— T. G. hefur síðasta áratuginn helgað sig ritstörfum og skáld-
skap. Hann er búsettur í Reykjavík.