Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1952, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.07.1952, Qupperneq 13
SKINFAXI 61 Cjunnar ~JJa ((dóríion J)lecfcf/aitidu IVIeðal æskulýðsf álaga í Bandaríkjtvnum. [Höfundur þcssarar greinar, Gunnar Halldórsson Skeggja- stöðum, Árnessýslu, var einn af þeim 10 íslendingum, sem dvaidi siðasl liðiS ár í Bandaríkjunum á vegum Efnahagssam- vinnustofnunarinnar í Washington (E.C.A.). Hann kynnti sér eftir föngum starfsemi 4 „H“ félaganna í Bandarikjunum og sat ársþing þeirra, sem haldiS var í Chicago 24.—29. nóv. Þar mættu 2000 fulltrúar úr öllum fylkjum Bandaríkjanna, einkum á aldrinum 16—20 ára. Þeir eru valdir eftir því, hvort þeir skara fram úr í hinum ýmsu framleiðslugreinum á mótum, sem haldin eru í hverju einstöku ríki. Þar mæta og ráSu- nautar félaganna og leiSbeinendur. Margir gestir voru á þinginu, bæSi frá Canada og mörgum löndum Evrópu. Gunn- ar var eini íslendingurinn þar. Allir voru leystir út meS gjöfum, aSallega frá fyrirtækjum, sem framleiða vélar og annað í þágu landbúnaðarins. Þau styrkja og þingið á annan liátt. Þing þetta var allt i senn: Framleiðslusýning, umræðu- og kynningarfundir og margt til skemmtunar. — R i t s t j.] Hvernig væri nú, lesendur góðir, að bregða sér í smáferðalag? Það verður að vísu ekki farið gangandi, því yfir haf er að fara. Við förum með skipi eða flugvél 4000 km. vestur yfir Atlantshafið og erum þá stödd á austurströnd Bandaríkjanna. Við skulum segja i New York. En við látum ekki staðar numið hér, þó margt sé nýstárlegt að sjá, heldur fáum við okkur farmiða með járnbraut, flugvél eða áætlunarbílnum, og síðan tökum við stefnuna vestur yfir landið. 1 þetta sinn verður áfanginn ekki skemmri en 5200 km. og þá erum við komin vestur í fylkið Oregon, sem er á vesturströnd Bandaríkjanna og í'erðin yfir landið hefur tekið 5 sólarhringa, er ferðast er í bíl dag og nótl en heldur skemur, ef farið er með járnbraut.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.