Skinfaxi - 01.07.1952, Page 27
SKINFAXI
75
Æsh uwnannaheiwn iti
[Á siðastliðnu hausti lagði V. G. upp í ferð umhverfis jörð-
ina. Forráðamenn Skinfaxa báðu hann að senda ritinu liug-
leiðingar úr ferð sinni um eittlivað, sem varðaði æskuna. Grein
þessa sendi hann svo frá Ceylon 27. febrúar.]
Góð einkaheimili. Flestir
eru gæddir þeirri þrá að
vilja eignast heimili í ein-
hverri mynd. Heimilin eru
líka talin traustustu horn-
steinar þjóðfélaganna. Þeg-
ar ákveðinn vilji einstakl-
inganna og hagur þjóðfé-
lagsins fara saman, þá er
vel. Og þá eru vonir og lík-
ur fyrir, að sé um mikil-
vægt mál að ræða. Margur
maðurinn bcrst harðri og
langri baráttu til þess að
eignast og viðhalda einka-
fjölskylduheimili. Árangurinn verður líka oft mikill og
góður, bæði fyrir sjálfan hann og samfélagið.
Skáldin ná þar vel hugsunum og tilfinningum manna,
eins og í svo mörgu öðru. „Sweet home, sweet home“,
Fá þeirra ná því þó eins vel og Guðmundur Guðmunds-
son i hinu yndislega kvæði: Heima.
„Ég uni mér hezt við arin minn,
er elskan mín situr með bros á kinn
og raular á vökunni sönginn sinn
við sofandi glókolla mína ....