Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1952, Page 29

Skinfaxi - 01.07.1952, Page 29
SKINFAXl 77 Gisfiiieimili Y.M.C.A. í Honolulu á Hawaii. og þeir yrðu að ganga fyrir öðrum. Þannig var það t.d. á Honolulu og víðar. Eitt af því, er ég taldi Y.M.C.A.-heimilunum til gildis var, að þar væri völ á heilbrigðu athafnalífi. Þar eru salir fyrir ýmsa kúlu- og knattleiki, sem ungir menn virðast mjög hrifnir af. 'Sundlaugar í húsinu eða við það, eingöngu til afnota fyrir húsbúa. Leikfimis- og iþróttasalir. Sérstök herbergi, þar sem næði er til þess að lesa, skrifa, tefla, spila o. s. frv. Einhversstaðar er oft dansað 1—2 klukkustundir að kvöldinu. Þá er einnig söngur og samkomur daglega. Svefnherbergi eru á efri hæðunum. Oftast fremur lítil, með 1—2 rúmum og nauðsynlegustu húsgögnum. Steypiböð og önnur hreinlætistæki eru á hverri hæð fyrir þá, sem þar búa. Sérstakt herbergi, með heitu og köldu vatni er í heimilunum fyrir þá, sem vilja þvo föt sín og slétta. 1 stærri borgunum búa í þessum heimilum oft svo skiptir hundruðum manna. Mest ungir menn, þótt roskn- ir og aldraðir fljóti þar með. Einkum þeir, sem jafnan

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.