Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1952, Page 31

Skinfaxi - 01.07.1952, Page 31
SKINFAXl 79 unum okkar frá foreldraheimilunum út i heræfingar talsverðan tíma af ævi þeirra. 1 stað heræfinga og allt annars eðlis, var uppi all mikil hreyfing á fyrstu árum ungmennafélaganna, er nefndist: Þegnskylduvinnuhreyfingin. Það var hreyfing, sem illu heilli hefur aldrei sigrað. Hún var fólgin í því, að hver æskumaður væri skyldugur að vinna a. m. k. nokkrar vikur þegnskylduvinnu, án kaups, tii gagns sér, landi sínu og þjóð. Var þetta jafnframt hugsaður skóli fyrir æskumennina um leið og mörg umbótamál voru fram- kvæmd fyrir almenning, sem gerðu landið betra og byggilegra. Góð mál verða aldrei gömul. Hví ekki að stytta dá- lítið langt skyldunám unglinganna við erlendan tungu- málagraut og annað misjafnlega nauðsynlegt á skóla- bekkjum inni. Hvíla þá stund, en hefja síðan aftur já- kvætt og lifrænt nám og starf við framkvæmdir, sem allsstaðar biða í hinu litt numda landi okkar. Þegn- skylduvinnan væri góð hermennska fyrir land og lýð og vísaði öðrum þjóðum framtiðarleiðina, þótt frá litlu þjóðinni kæmi norður við heimskautsbauginn. Eitt af skyldunáminu og skylduverkunum ætti að vera bygging æskumannaheimila. Æskunni er eigin- legt að vinna fyrir framtíðina, sem er þá oft um leið hennar eigin framtíð. Framtíðarverkefni. Þessi æsku- og gestaheimili ættu ekki að vera neinar tildurs- eða „lúxus“ hallir, heldur lagleg snyrtileg hús með rúmgóðum ræktuðum blettum umhverfis, með blóma- og trjárunnum hér og þar. Húsið þarf að vera búið vistlegum húsgögnum, svo þar verði heimilislegt fyrir íhúana í framtíðinni, hvort þeir húa þar nokkra daga, nokkrar vikur, mánuði eða ár. Vinna allt í þegnskylduvinnu, sem mögulegt er. Þjóðfélagið legði fram efni, leiðbeiningar og verkstjórn. Við hvert hús þyrfti svo að myndast félag, þar sem

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.