Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1956, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.04.1956, Blaðsíða 5
SKINFAXI 5 verðlaimaði frækilega og hlutdrægnislaust híið bezta, yrði hér áreiðanlega þyngst á metum. Að vísu verður naumast með réttu sagt, að útgáfufé- lögum eins og Almenna bókafélaginu og Máli og menn- ingu beri beinlínis skylda til að inna þetta verkefni af höndum, nema þá helzt siðferðileg skylda. Ætti það þó sannarlega að vera í anda þessara félaga að gefa út ný íslenzk skáldrit, ef marka má stefnwskrá þeirra og yfirlýsingar forystumannanna. En um Menningarsjóð og Þjóðvinafélagið gegnir þó allt óðru máli. Því útgáfu- félagi ber bókstaflega skylda til að efna árlega til skáld.- ritasamkeppni. Er elcki vafi á, að sumt af útgáfubók- um þessa fyrirtækis mætti að skaðlausu víkja fyrir svo merkilegu verkefni. Þjóðarútgáfa á að hafa þetta lilut- verk með höndum og lcatta þannig fram meiri og betri listaverk. Hefðu sumir þeirra höfunda, er gáfu út skáld- rit á síðastliðnu ári, verið góðra verðlauna verðir, og vel hefðu þeir mátt njóta þess að geta helgað sig list Sinni óskiptir eftir unnið afrek, þó ekki hefði verið nema um fárra mánaða skeið. Það geturr varla talizt vanzalaust fyrir aðra eins bók- menntaþjóð og Islendingar vilja lcalla sig, að ekki skuli árlega efnt t)il skáldritasamkeppni í föstu fomii eða á annan hátt verðlaunuð ríflega þau skáldverk, sem fram úr slcara. Þótt öll sönn listaverk séu launa verð, væri þó rétt að miða þessa samlceppni við þá höfunda, sem ekki eru táldir alveg komnir í fremstu röð. Yrði það efalaust drjúg lyftistöng góðum afrekum i bókmennt- um. Og þótt margir efnilegir höfundar séu nú starf- andi með þjóðinni, má þó enn segja með skáldinu: Strjáll er enn vor stórj skógur, stendur hann engum fyrir sól.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.