Skinfaxi - 01.04.1956, Síða 20
20
SKINFAXI
erlenclum. vettuangi:
Sextándu Ólympíuleikar, hinir síðari, verða
í Melbourne í Ástralíu á þessu ári
Eins og kunnugt er verða Ólympíuleikarnir háðir í Mel-
bourne í Ástralíu á þessu ári. Þeir hefjast síðari hluta dags
22. nóvember, og þeim lýkur 8. desember. í þessa 16 daga
mun Ólympíueldurinn brenna i keri á hárri súlu á íþrótta-
svæðinu. Eldurinn verður kveiktur af hlaupara, sem áður mun
renna með hann hringskeið eftir hlaupabraut Ólympíuleik-
vangsins. Þessi hlaupari verður sá síðasti af 2750 hlaupurum,
sem hver af öðrum mun bera eldinn 2750 mílna leið frá
Cairns á norðurströnd Drottningarlands til Melbourne. Til
Ástralíu verður eldurinn fluttur í flugvél frá Grikklandi, þar
sem hann verður tendraður af geislum sólarinnar. — Hertog-
inn af Edinborg, Filip drottningarmaður, mun setja íþrótta-
hátiðina með stuttri ræðu.
Á undanförnum árum hafa öðru hverju heyrzt um það radd-
ir, að Ástralíumenn væru naumast undir það búnir að geta
haft Ólympíuleikana. Menn hafa efazt um, að í Melbourne væru
SvæSið í Mclbourne, þar sem Ólympíuleikarnir fara fram.
Svæðið er á bökkum Yarrafljótsins. T. v. sést Krikketvöllur-
inn og Ólympíugarðurinn.