Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1956, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.04.1956, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI fylkingunni voru bornir íslenzkir fánar. Þegar fylkingin nálg- aðist bústað skáldsins, Gljúfrastein, tóku menn að syngja ætt- jarðarsöngva undir stjórn Jóns Guðmundssonar á Reykjum. Er heim var komið, flutti formaður Umf. Aftureldingar, Sveinn Þórarinsson í Hlíð, ávarp fyrir hönd sveitunga sinna. Skáldið svaraði með ræðu. Voru viðtökur þeirra Gljúfrasteinshjóna hinar ynnilegustu, og skiptust menn á að ganga í bæinn og þiggja beina, en svo fjölmennt var, að ekki komust allir inn í einu. Þessi heimsókn var öll hin myndarlegasta og Mosfellssveit- armönnum til mikils sóma. Verður hér á eftir birt ávarp for- manns Umf. Aftureldingar, Sveins Þórarinssonar, og svar Nó- belsverðlaunaskáldsins, Halldórs Kiljans Laxness. —Avarp S)uelní f-^i oranniáonar i JMá, ormannó Um,f-. s4fture(dinffar, u'd Cj(júfrailein //. febráar 1956 Fyrir hönd Ungmennafélagsins Afturelding og ann- arra þeirra, sem hér eru komnir til húsa ykkar, leyfi ég mér að ávarpa ykkur, Halldór Kiljan Laxness og frú Auður Sveinsdóttir. Við erum komin hér í þeim tilgangi að sýna ykkur lítið brot af þeim vinarhug og þeirri virðingu, sem við berum í brjósfum. Ykkur hefur að verðskulduðu verið sýndur marghátt- aður sómi og mikill heiður í glæstum salarkynnum af mönnum úr æðstu stéttum og hæstu tröppum ýmissa ríkja. Við, sveitungar ykkar, kjósum að hylla ykkur hér, þar sem þú, Halldór, sleizt barnsskóm þínum, þar sem þú steigst þín fyrstu spor á þeirri braut til hins mesta heiðurs, sem skáldi getur hlotnazt. Héðan er upprunn- inn sá ljómi orðsins listar, sem nú breiðir birtu yfir Is- land og íslenzka þjóð, og í okkar augum yfir Mosfells- sveitina sérstaklega. Aldrei hefur íslenzk sveit átt frægari mann í hópi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.