Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 9
Sundkeppendur stinga sér í tjörnina á Laugum
nýtt eftir þörfum. Hér eru lífsmöguleikar
fyrir þjóð, sem telur milljónir ibúa. Yms-
ar þjóðir hafa áhyggjur af því, að lönd
þeirra eru svo þéttbyggð, að ekki eru önn-
ur úrræði fyrir hendi en flytja úr landi
meginhlutann af fólksfjölguninni. Þær
áhyggjur erum við íslendingar lausir við,
sem betur fer. í stað þess blasa við verk-
efnin ótæmandi fyrir nútíðina og kom-
andi kynslóðir. Vitað er, að margir ís-
lendingar gera sér grein fyrir hinum
mörgu möguleikum, og skal því ekki farið
nánar að þessu sinni út í þau mál. En
allir þeir Islendingar. sem gera sér grein
fyrir auðlindum og möguleikum landsins,
hljóta að líta glaðir til komandi tíma,
ókvíðnir og ákveðnir í því að uppfylla
þær skyldur, sem á þeim hvíla, þ. e. að
skila landinu og atvinnuvegunum í meiri
fjölbreytni og betra ástandi en þegar við
þeim var tekið. Nauðsyn ber til að æsk-
an hugsi sjálfstætt og taki með varúð
og gagnrýni áróðri, sem oft er fram
borinn á vafasaman hátt. Holl er sú regla,
s K I N F A X I
9