Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 39
íþróttir hjá mörgum ungmennafélögum. Á
landsmótinu að Laugum var keppt í bú-
fjárdómum, dráttarvélaakstri, jurtagrein-
ingu, gróðursetningu trjáplantna, saumi
og línstroki og matreiðslu. Þátttakendur
voru um 100.
Þau félög, sem vilja fá upplýsingar og
aðstoð í starfsíþróttum, eru beðin að leita
til skrifstofu U. M. F. 1.
Utanför.
1 sumar var haldið norrænt íþróttamót
í Vejle í Danmörku. Ungmennafélag Is-
lands sendi 30 frjálsíþróttamenn á mót-
ið, karla og konur. Alls var hópurinn 40
manns, auk fararstjóra og gesta. Þátttak-
endur voru valdir að loknu landsmótinu að
Laugum. íslenzku piltarnir unnu keppni í
frjálsum íþróttum. Stúlkurnar urðu í öðru
sæti. Samanlagt urðu íslenzku þátttakend-
urnir hæstir. Þetta var fyrsta hópför ís-
lenzkra frjálsíþróttamanna frá U. M. F. í.
til keppni á erlendri grund.
Saga U. M. F. I.
Munið að senda skrifstofu U. M. F. I.
ágrip af sögu félaganna. Það er mjög áríð-
andi vegna væntanlegrar útgáfu á sögu U.
M. F. I.
Skattar og skýrslur.
Þau ungmennafélög, sem ekki hafa enn
sent skýrslur og skatta til viðkomandi
héraðssambands fyrir árið 1960, eru beðin
að gera það nú þegar. Þau félög, sem ekki
standa í skilum með skýrslur og skatta,
eiga á hættu að njóta ekki styrkja frá
hinu opinbera til kennslu og annarra fram-
kvæmda. Skattur héraðssambandanna til
U. M. F. í. er kr. 5,00 af hverjum reglu-
legum félagsmanni fullra 16 ára.
Félagatal og félög.
19 héraðssambönd eru nú í U. M. F. 1.
Innan þeirra vébanda eru 173 félög með
samtals um 9851 félagsmanni. Auk þess
eru 5 ungmennafélög í U. M. F. I. utan
héraðssambands með um 874 félögum. IJm
20 ungmennafélög eru ekki talin hér með.
Þau eru utan héraðssambanda eða eru í
vanskilum. Félagsbundnir ungmennafélag-
ar eru alls um 12000.
Samþykktir og bréf.
Munið að lesa samþykktir síðasta sam-
bandsþings í Skinfaxa. Félagsformenn eru
beðnir um að lesa þetta bréf á félags-
fundi.
Kæru félagar!
Vetrarstarfið í ungmennafélögunum er
nú að hefjast. Sinnið því af alúð með það
í huga, að þroska sjálfa ykkur og félaga
ykkar í starfi og leik. Á þann hátt veitið
þið hugsjónum ungmennafélaganna bezt
lið.
íslandi allt.
Eiríkur J. Eiríksson
(sambandsstjóri)
Skúli Þorsteinsson Jón Ólafsson
(varasambandsstjóri) (ritari)
Ármann Pétursson Stefán Ól. Jónsson
(gjaldkeri) (meðstjórnandi)
Lárus Halldórsson Gestur Guðmundsson
(varastjórn) (varastjórn)
Gefendur verðlaunagripa á Landsmóti
U. M. F. í. 1961
Frjálsíþróttasamband íslands, Ung-
mennafélag Keflavíkur, Ungmennafélag
Bessastaðahrepps, Ungmennasamb. Kjal-
s K I N F A X I
39