Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 48
22. sambandsþing Ungmennafélags íslands 1961
22. sambandsþing Ungmennafélags íslands var
haldið að Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu dag-
ana 28. og 29. júní 1961,.
Sambandsstjóri UMFÍ, séra Eiríkur J. Eiríks-
son, setti þingið með ræðu, Gestir þingsins voru
Benedikt G. Waage, forseti í. S. 1, og Pétur Sig-
urðsson erindreki. Forseti I. S. I. áþarpaði þingið,
og Pétur Sigurðsson flutti ræðu um bindindismál.
Forsetar þingsins voru Jón Hjartar og Ketill
Þórisson, en ritarar Tómas Jónsson og Sveinn
Jónsson.
Helztu mál þingsins voru þessi: íþróttamál,
starfsíþróttir, bindindismál, skógræktarmál, félags-
heimilin og rekstur þeirra, félagslegt uppeldi.
Helztu samþykktir þingsins:
22. sambandsþing UMFÍ þakkar störf héraðs-
skólanna og alþýðuskólans að Eiðum að málefn-
um ungmennafélaganna. Reynslan sýnir, að í
þeim héruðum, sem samvinna ungmennafélaganna
við héraðsskólana er virk, eru ungmennafélögin
ve! starfandi. Því beinir þingið þeim tilmælum til sambandsfélaganna og sérstaklega stjórna hér- aðssambandanna, að viðhalda náinni samvinnu
32. — Rg5 var sennilega sterkara.
33. h3—h4 h7—h5
34. Rf3—e5 Kg8—g7
35. Kh2—gl Bf8—c5t
36. Kgl-fl Re4—g3t
37. Kfl—el Be5—b4r
38. Kel—dl Bd5—b3f
39. Kdl—cl Rg3—e2f
40. Kcl—bl Re2—c3t
41. Kbl—cl Ha2- —c2 mát.
Vegna þess að mér barst ekki í hendur próf-
örk af síðasta þætti, urðu þau mistök, að skýr-
ingar við þrautirnar vantaði og þar að auki var
önnur þeirra rangt prentuð. Ur þessu verður
reynt að bæta síðar. Þ. S.
Eins og sjá má af orðalagi þáttarins, var gert ráð
fyrir að hann birtist snemma á síðastliðnu sumri.
við héraðsskólana. Þá hvetur þingið ungmennafé-
lögin til þess að efla samstarf samtakanna við
aðra skóla landsins, svo sem heimavistarbarna-
skóla, bændaskóla, unglingaskóla og kvennaskóla,
með tilliti til þess, að samstarf þessara aðila verði
báðum til góðs og æskulandsins til uppörfunar og
aukins þroska.
Þingið fagnar samstarfi íþróttakennaraskóla ís-
lands og sérsambandanna um námskeið fyrir
íþróttaleiðbeinendur og vekur athygli héraðssam-
bandanna á þessum nýja þætti íþróttastarfsins.
Jafnframt hvetur þingið héraðssamböndin til þess
að styðja sem bezt má verða stöðuga íþrótta-
kennslu hjá ungmennafélögunum með: a) um-
ferðakennslu í samvinnu við skóla b) aukinni
íþróttastarfsemi meðal barna og lciðbeiningum og
íþjóttamótum c) námskeiðum, sem standa um
nckkurt skeið d) helgarnámskeiðum og leiðbein-
endanámskeiðum.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir því, sem áunnizt
hefur í starfsíþróttum á undanförnum árum og
leggur áherzlu á eftirtalin atriði: a) meiri sam-
vinnu við forráðamenn hinna ýmsu atvinnugreina
i landinu b) fleiri leiðbeinendur í starfsíþróttum
og meiri samvinnu við skóla, fjölgun starfsgreina,
t. d. í sambandi við sjávarvinnu ýmis konar c)
endurskoða sumar greinar starfsíþrótta og gera
þær einfaldari og auðveldari í framkvæmd.
a) Þingið vill að komið verði á árlegri skoðun
dráttarvéla hliðstæðri við skoðun biðreiða b) ald-
urstakmark við akstur dráttarvéla á vegum úti
c) að tryggt verði öryggi ökumanna með þar til
gerðum útbúnaði.
Sambandsþingið leggur áherzlu á þýðingu fé-
lagslegs uppeldis æskulýðsins og skorar á fræðslu-
málastjórnina að ætla því rúm í starfsskrá skól-
anna, enda sé kennurum ætluð laun fyrir félags-
legar leiðbeiningar og hjálp í þeim efnum.
Þingið fagnar því, að hreyfing er vakin um að
reisa kristilegan lýðskóla í Skálholti og felur stjórn
UMFÍ að styðja það mál.
48
S K I N F A X I