Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 19
Þeir, sem giímdu, auk Ármanns, voru
þeir Garðar Eriendsson úr Reykjavík og
Þórir Sigurðsson frá Haukadal.
Daginn eftir, laugardaginn 22. júlí, hélt
frjálsíþróttakeppnin áfram og lauk síð-
degis þann dag.
Ragnheiður Pálsdóttir náði öðru sæti í
kringlukasti, kastaði 35.80 m., sem er að-
eins 32 cm. styttra en gildandi íslands-
met. Kristín Tómasdóttir varð 6. með
25.56 m.
Ingólfur Bárðarson sigraði glæsilega í
hástökki, stökk 1.81 m.
Hörður Jóhannsson varð nr. 7, stökk
l. 65 m. Báðir komust þeir í sunnudags-
keppnina.
Ágúst Ásgrímsson og Brynjar Jens-
son sáu um að ísland fengi tvö fyrstu
sætin í kúluvarpi, Ágúst varpaði 14.27
m. , en Brynjar 13.19 m.
Sigrún Jóhannsdóttir stökk 1.45 m. í
hástökki og varð nr. 2. Hún átti mjög
góðar tilraunir við 1.50 m., sem hefði
orðið nýtt Islandsmet.
En það átti eftir að koma seinna.
Svala Lárusdóttir stökk 1.30 m.
Þegar hér var komið sögu, voru að-
eins tvær greinar eftir.
Islenzki karlaflokkurinn hafði nú það
mikið forskot, að ekkert gat komið í veg
fyrir sigur hans í stigakeppninni.
Islenzka kvennaliðið var enn í öðru sæti,
vantaði aðeins 60 stig til að ná foryst-
unni.
Haukur Engilbertsson varð 3. í 1000
m. hlaupinu á 2.42,4 mín., en Guðm.
Hallgrímsson 6. á 2.44,2 mín.
I 200 m. hlaupinu lentu ísl. stúlkurnar
aftur í síðustu riðlunum. Guðlaug vann
9. riðil á 28.8 sek. og náði 4. sæti.
Mikkeiína Pálmadóttir vann 10. riðil á
30.5 sek.
Þar með var keppninni lokið. Allir þátt-
takendur í förinni höfðu fengið að reyna
sig og allir gert sitt bezta.
Flokkurinn hafði sýnt Ungmennafélagi
Islands þann sóma að sigra í stigakeppn-
inni, hlaut samtals 15.627 stig með Rand-
ers amt í öðru sæti með 13.869 stig.
Karlaflokkurinn sigraði með yfirburð-
um, en kvennaflokkinn skorti aðeins 41
stig til að ná Randers amt, sem vann
verðskuldaðan sigur.
Á sunnudaginn fór svo fram aukamót
á Vejlestadion að viðstöddum 20 þúsund
áhorfendum.
12 Islendingar höfðu náð því marki að
komast þangað.
Árangur þeirra varð mjög glæsilegur,
því að öllum tókst að verða meðal fjög-
urra fyrstu í sínum greinum. Sigruðu
þeir í 4 greinum af 10, unnu tvenn önnur
verðlaun og þrenn þriðju verðlaun.
Eitt íslandsmet var sett. Stúlkurnar
settu aftur met í 5x80 m. boðhlaupi,
hlupu nú á 54.5 sek.
Að morgni mánudags, 24. júlí, kvaddi
ísl. flokkurinn Vejle og sína góðu vini,
sem þeir höfðu eignazt þar.
Var nú haldið af stað í eins dags
ferðalag um Suður-Jótland með þeim
ágætasta bifreiðarstjóra, sem ég hef
kynnzt til þessa, að öðrum ágætum ólöst-
uðum. Hann var allt í senn: bifreiðai’-
stjóri, fararstjóri og söngstjóri. Voru
flestir merkustu sögustaðir héraðsins
skoðaðir í dásamlegu veðri.
Um kvöldið var komið til íþróttaskól-
ans í Sdnderberg, þar sem Jón Tr. Þor-
steinsson, íþróttakennari, tók á móti okk-
SKIN FAX I
19