Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 10
að gera meiri kröfur til sjálfs sín en
annarra. Okkur ber að minnast með þakk-
látum huga hinna mörgu, sem barizt hafa
fyrir frelsi, framförum og bættum kjör-
um alþjóð til handa. Skylt er að minnast
með þakklátum huga hinna mörgu, sem
með þrautseigju og dugnaði unnu sigui- í
baráttunni við fátæktina og kyrrstöðuna.
Vegna þeirrar baráttu eru fslendingar
frjáls þjóð og fullvalda, sem býr við jafn-
ari og betri lífskjör en ýmsar aðrar menn-
ingarþjóðir. Hollt er að litast um á spjöld-
um sögunnar, þar sem margt er skráð úr
baráttusögu þjóðarinnar. Viðurkennt er
af öllum íslendingum. að Jón Sigurðsson
gnæfi hæst í sögunni. En hver getur
annað en hrifizt af baráttu margra ann-
arra fslendinga, svo sem Skúla Magnús-
sonar og Fjölnismanna, í viðleitni þeii'ra
til þess að vekja þjóðina til dáða og bar-
áttu? Ötal margir fleiri hljóta að koma
fram í hugann, þegar um söguna er hugs-
að, og fátt mun betur fallið til þess að
leiðbeina æskufólki um skyldurnar við
þjóðfélagið en það að kynnast baráttu-
sögu fslands beztu sona og dætra fyrr og
síðar. Það mun einnig kenna mönnum að
meta þau verðmæti, sem fengizt hafa
eftir aldalanga baráttu. Það er mikils
virði að geta búið frjáls í góðu landi.
Það er mikil breyting frá því sem áður
var. Nú ríður á að gæta þess vel, sem
áunnizt hefur. Saga íslendinga, hvort sem
hún gerðist á 10. eða 20. öldinni, er nauð-
synlegur og hollur lestur íslenzku æsku-
fólki.
Það er rétt hermt hjá bóndanum í Ár-
nessýslu, að lestur íslendingasagna hefur
víðtæk áhrif á æskumenn, skapgerðina og
hugsunarháttinn, e.vkur þrek og kjark og
Þarna getur að líta Snæfellingabúð.
kennir mönnum að ekki er afsakanlegt að
gefast upp eða mikla fyrir sér erfið-
leikana, heldur ber að fara að fordæmi
hinna beztu manna og heyja baráttuna
þar til sigur vinnst. Hinum traustu og
farsælu baráttumönnum liðins tíma verð-
ur bezt þakkað með því að viðhalda þeim
eldmóði, sem einkenndi frumherja ung-
mennafélagshreyfingarinnar hér á landi.
Sá eldur hugsjóna, sem þeir kveiktu,
verður ávallt að loga í íslenzku þjóðlífi.
Sú hugsjón, sem þeir unnu fyrir, á að
spanna yfir landið allt, við strendur og
inn til dala. íslenzk æska getur í dag
10
5 K I N F A X I