Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 14
För til Vejle
Árla morguns, hinn 19. júlí, steig hóp-
urinn um borð í flugvélina Hrímfaxa,
sem flytja átti hann til Tirstrupflug-
vallar á, Jótlandi. Allir voru glaðir og
hressir og fullir eftirvæntingar, enda var
þetta fyrsta utanför flestra þátttakenda.
Þegar fiogið hafði verið í um það bil
þrjá stundarfjórðunga, tilkynnti flug-
stjórinn, að vegna smábilunar yrði hann
að snúa við til Reykjavíkur.
Þaðan var svo lagt af stað í alvöru
klukkan 11,30 f. h. Nú gekk allt að ósk-
um, og brátt vorum við í glampandi sól-
skini í 20 þúsund feta hæð. Allt lék í
lyndi um borð. Það var sungið, Skúli
Þorsteinsson orti, héraðskeppni fór fram
í „Olsen 01sen“ og tvær kempur sátu
baki brotnu yfir blindskák, sem reyndar
lauk með jafntefli eftir 6 leiki.
Tíminn leið óðfluga, og áður en varði
var Hrímfaxi lentur á Tirstrup.
Þar tóku á móti okkur tvær danskar
blómarósir, sem fylgdu okkur til Vejle,
borgarinnar fögru, sem átti eftir að
angrun byrginn og lætur okkur svo eftir
háðan leik og að móti loknu taka enn
fastar höndum saman í vorverkum þjóð
okkar til heilla og æskulýð hennar.
Heil öll til þeirrar Hildar. Sígi nú saman
fylkingar til mannbætandi orrustu og
þroskavænlegrar.
Ellefta landsmót U. M. F. 1. er sett.
Eiríkur J. Eiríksson.
verða dvalarstaður okkar næstu daga. Við
komuna þangað tók á móti okkur for-
stöðumaður mótsins, Arnth Jensen, og
bauð okkur velkomin.
Tilkynnti hann okkur jafnframt, að
hópnum yrði skipt niður á dönsk heimili
til dvalar. Og ekki höfðum við fyrr lokið
við kvöldverðinn en gestgjafarnir komu
og drifu fólkið í háttinn. Sumir tóku að-
eins einn, aðrir tvo, en flestir fóru fimm
saman.
Ekki var laust við að ég væri dálítið
kvíðinn út af þessari ráðstöfun. í fyrsta
lagi vegna þess að margir kunnu lítið
sem ekkert í dönsku og í öðru lagi myndi
fólkið ekki fá þann undirbúning, hvíld
og félagslega sameiningu, sem þarf fyrir
erfiða keppni sem þá, er í vændum var.
Enda kom það á daginn, þegar út í keppn-
ina kom, að margir voru ekki nægilega
hvíldir.
Þeir, sem lengst þurftu að fara í nátt-
stað, bjuggu 15 kílómetra fyrir utan borg-
ina.
Hins vegar ber að geta þess, að þetta
var af góðri meiningu gert og í tvennum
tilgangi: að tryggja góðan aðbúnað hin-
um íslenzku gestum til handa og gefa
þeim tækifæri til að kynnast dönskum
heimilum og heimilisvenjum.
Og eitt er víst, að þetta glaða og gest-
risna fólk, sem hýsti okkur þessar fimm
nætur í Vejle, á ríkan þátt í því að gera
dvölina þar ógleymanlega.
Fyrir hádegi næsta dag var æft saman
á hinu glæsilega íþróttatvæði íþróttaskól-
ans í Vejie (Den jyske Idrætsskole). Vor-
um við furðu lostin yfir þeim fullkomnu
íþróttamannvirkjum, sem skólinn hefur
yfir að ráða, og óskuðu víst margir þess
14
S K I N F A X I