Skinfaxi - 01.04.1961, Blaðsíða 38
lögin safni áskrifendum að Skinfaxa. —
Vinsamlegast sendið nú þegar greiðslu
fyrir Skinfaxa árið 1960 — kr. 30,00.
Þrastaskógur.
í sumar var mikið unnið í Þrastaskógi.
Þar var sléttaður myndarlegur leikvang-
ur og lagður að honum vegur. Árlega eru
þar gróðursettar 5—6 þúsund trjáplöntur.
Fjöldi gesta heimsækir skóginn, og er um-
gengni þeirra með ágætum.
Sambandsstjórn U. M. F. I. hvetur ung-
mennafélögin til þess að vinna ötullega að
skógrækt í sínum heimahögum.
Munið að geta þess í ársskýrslum, ef
félögin vinna að skógræktarmálum.
Héraðsmót og aðrar samkomur
ungmennafélaga.
Sambandsstjórn vill sérstaklega brýna
fyrir ungmennafélögum að gera allt, sem
er í þeirra valdi, til þess að allar sam-
komur, sem þau standa að, fari fram með
reglusemi og myndarbrag. Sérstaklega
hvetur hún til þess, að vanda til skemmti-
atriða og vinna að þeim af félagsmönnum
sjálfum, eftir því sem við verður komið.
Ungmennafélögin standa að fjölmörgum
mannfundum víða um land á hverju ári.
Þau ættu því að geta haft áhrif á sam-
komumenningu þjóðarinnar.
Hin nýju, myndarlegu félagsheimili, sem
byggð hafa verið á síðustu árum, eiga að
vera menningarmiðstöð viðkomandi byggð-
arlaga. Þau eiga að veita ungmennafélög-
unum aðstöðu til heilbrigðs félagslífs og
einstaklingnum aukinn félagsþroska.
Leikstarf ungmennafélaganna hefur ver-
ið og er merkur menningarþáttur í starf-
semi félaganna. Þann þátt þarf að auka
og efla. 1 þeim efnum eiga félagsheimilin
að veita gott skjól.
Bindindismál.
Ungmennafélögin hafa bindindi um
nautn áfengra drykkja á stefnuskrá sinni.
Þau vilja vernda æskulýðinn gegn neyzlu
þeirra og vinna að útrýmingu skaðnautna
úr landinu. Það er því miður ekki á valdi
ungmennafélaganna einna að útrýma
áfenginu, en með góðri fyrirmynd og já-
kvæðu félagsstarfi geta þau veitt mikið
lið. Ungmennafélögin verða að leita allra
ráða til þess að þær samkomur, sem eru
á þeirra vegum, séu til fyrirmyndar og
lausar við ómenningu áfengisneyzlunnar.
Ef þeim tekst það ekki, þá hafa þau
bognað fyrir hættulegum tíðaranda. Ung-
mennafélögunum verður að vera ljóst, að
hér er þjóðfélagsleg hætta á ferðum. Þau
mega ekki gefast upp í baráttunni.
íþróttir.
U. M. F. í. greiðir % hluta af launum
íþróttakennara, en hálfan þann hluta, ef
félagið eða héraðssambandið er einnig í I.
S. 1. Þau ungmennafélög, sem ætla að fá
íþróttakennara í vetur, en ekki hafa þegar
tryggt sér hann, ættu að láta stjórn hér-
aðssambands síns eða skrifstofu U. M. F.
í. vita sem fyrst. Síðastliðið ár höfðu 10
héraðssambönd samtals 36 kennara. —
Kennslu nutu 875 konur og 1750 karlar,
eða samtals 2626 einstaklingar. Héraðs-
samböndin og einstök ungmennafélög
stóðu að fjölmörgum íþróttamótum víða
um land síðastliðið sumar.
Starfsíþróttir.
Síðastliðið sumar voru æfðar starfs-
38
S K I N F A X I