Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1961, Síða 11

Skinfaxi - 01.04.1961, Síða 11
Kveðjur og árnoðaróskir Árið áður en ég tók við Skinfaxa, hafði aðeins komið út af honum eitt blað. Það leiddist svo í tal milli mín og vinar míns, séra Eiríks Eiríkssonar, hverjar horfur væru um útkomu blaðsins, og varð það úr, að ég bauðst til að taka við ritstjórninni og koma reglu á útgáfuna, en þá er tiltæk- ur væri ritstjóri, sem væri í nánum tengsl- um við ungmennafélögin og gæti annað því að koma blaðinu út, léti ég af rit- stjórn, þar eð hvorki væri því til að dreifa, að mig skorti viðfangsefni, né greiðsla fyrir ritstjórn blaðsins væri það há, að ég gæti þess vegna freistast til að sinna henni frekar öðrum ritstörfum. Þegar séra Eiríkur Eiríksson fluttist til Þingvalla, taldi ég ekki aðeins eðli- legt, heldur og sjálfsagt, að hann tæki við ritstjórn Skinfaxa og sagði henni því upp. Og nú kemur blaðið í fyrsta skipti út undir stjórn hans, þótt enn sé ekki ráðið, hvernig hagað verði útkomu þess, heftafjölda og efnisvali. Séra Eiríkur er maður, sem notið hefur horft djörf til framtíðarinnar með þann ákveðna ásetning að halda stefnu ung- mennafélagshreyfingarinnar í heiðri og vinna samkvæmt þeirri stefnu. Ungmennafélagar, góðir áheyrendur, megi íslenzk æska ávallt halda á lofti þeim kyndli, sem kveiktur var með stofn- un Ungmennafélags Akureyrar 1906. Megi sú hugsjón, sem þá var vakin, ávallt vera veruleiki og verða aflgjafi og leiðarljós íslenzkri æsku í nútíð og um alla framtíð. óvenjulegs trausts hjá ungmennafélögum þessa lands. Hann hefur verið sambands- stjóri þeirra og sameiningartákn um ára- tugi, enda eru honum mál þeirra ærið hjartfólgin, og þrátt fyrir allar þær öldur erlendrar sýndarmennsku og ómenningar, sem yfir þjóðina hafa gengið og fært öðru hverju í kaf þær fornu dyggðir og þær fleygu hugsjónir, sem ungmenna- hreyfingin hefur frá upphafi vega dáð og haft í heiðri, hefur honum aldrei komið til hugar að efast um, að ung- mennafélögin mundu lifa og merki þeirra ljóma áður en langt liði, eigi síður en forðum, þá er það í gerningahríð sundr- ungar og uppflosnunaranda skein sem sól í heiði og lýsti til þjóðlegrar menn- ingarsóknar þúsundum ungra sveina og meyja á landi hér. Séra Eiríkur Eiríksson hefur um langt skeið verið hollvinur minn. og ég mundi engan eiga betri. Við höfum löngum rætt margvísleg hugsjóna- og vandamál mér til mikillar ánægju og oft þekkingarauka. Hann er víðlesinn, hefur fátt — og ekk- ert viljandi — látið fram hjá sér fara, sem máli kynni að geta varðað, hvort sem það tekur til allra, cem þessa jörð byggja, eða einungis til okkar Islendinga. Hann er jákvæður maður að eðli, trúmaður á mátt og sigur gróðrarafla lífsins, og hann er gæddur þeirri náðargáfu að geta séð skoplegar hliðar á sjálfum sér og öðrum — og þá einnig á ýmsum málefnum — á,n þess að hið skoplega rýri gildi manna eða mála. Hann er og gæddur mikilli starfsorku, frábærum dugnaði og ein- stæðri samvizkusemi, og reyndust þessir eiginleikar hans ómetanlegir í skólastarfi hans á Núpi. 1 1 s K I N F A X I

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.