Skinfaxi - 01.04.1961, Side 12
R Æ Ð A
við setningu 11. landsmóts U.M.F.Í.
að Laugum 1. júlí 1961
Hér hefst nú einn mesti mannfundur
á fslandi og viðureign stærst í íþrótta-
sögu okkar. Einstaklingar munu keppa
og fylkingar síga saman.
Æskulýður úr byggðum hinna fornu
Haukdæla, Sturlunga, Ásbirninga og úr
öðrum landshlutum munu eiga hér til-
þrifamikinn fund með sér.
Hér veldur engu um valdabarátta ein-
stakra höfðingja, atvikum bundin líðandi
stundar.
Hér munu eldar brenna keppni og
áhuga, en ekki hatursglóðir né eyðingar,
heldur hins gagnstæða, uppbyggingar og
landsheilla.
Undanfarin ár hefur æskulýður fslands
innan ungmennafélagshreyfingarinnar
verið að undirbúa sig undir úrslitaátök
þessara daga.
Á rúmri hálfri öld ungmennafélaganna
hafa þau haldið 10 iandsmót, og hér hef-
ur nú hafizt hið ellefta á fögrum stað í
Þess vegna er það, að svo fremi hann
fái notið sín sem forystumaður ungmenna-
félaganna á höfuðstöðvum þeirra hér
syðra, finni, að hann njóti óbilugs stuðn-
ings og vökuls starfsvilja samstarfsmanna
sinna, má treysta því, að þekking hans,
áhugi, dugnaður og samvinnulipurð komi
að ómetanlegu gagni, jafnt við ritstjórn
Skinfaxa sem stjórn sambandsins.
Heill fylgi starfi hans og sambandsins.
Guðm. Gíslason Hagalín.
hinu bezta veðri, við enn stærsta þátt-
töku í hinum margháttuðu greinum þessa
móts.
Við vorum hér síðast á Laugum fyrir
15 árum. Síðan höfum við haslað okkur
völl í Hveragerði í Árnessýslu, að Eiðum
austanlands, á Akureyri hér nyrðra og
síðast á Þingvöllum árið 1957.
Hinn mikli liðssamdráttur okkar nú og
mannaferð ungmennafélaga um héruð
landsins á sér mikinn aðdraganda.
Góðar samgöngur og aukin velmegun
þjóðar okkar gerir þetta mögulegt. Miklu
hefur til vegar komið góður stuðningur
velvildarmanna æskulýðsins heima í hér-
uðunum og hér á þessum stað. Það skal
þegar þakkað. En mestu koma til vegar
framlög þátttakenda sjálfra, þessara lið-
sveita, er hér standa fyrir framan mig.
Víðast bíða þeirra ærin verkefni heima
fyrir, sem óleyst yrðu án þeirra. Höfum
það hugfast, að hér er saman komið
áhugafólk, sjálfboðaliðar, hugsjónamenn.
Margri hvíldarstund hefur verið varið
til þjálfunar, en einnig, og það er ef til
vill mest um vert: Margri stund, sem ella
hefði verið varið til einskis, hefur fyrir
þetta mót verið breytt í líkamlegt þrek.
fagrar hreyfingar, andlegan styrk til
stríðs og starfs og viðnáms gegn freist-
ingum og hvers konar spillingu.
Vegna undirbúnings þessa móts, hefur
mörgum æskumanni veitzt færi að beina
sjónum sínum frá flatneskju hversdags-
lífsins með mýraflóum menningarsnauðs
skemmtanalífs og um margt til spilling-
ar — upp til tinda heilbrigðrar þjálfun-
ar og loks á efsta tindinn, keppninnar
hér. Mót ungmennafélaganna allt frá hinu
fyrsta þeirra árið 1909 hafa verið slík
12
S K I N F A X I