Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1961, Qupperneq 40

Skinfaxi - 01.04.1961, Qupperneq 40
Frá skrifstofunni: Úr skýrslum héraðssambanda 1960 Ungmennasamband Borgarfjarðar. Héraðsþing haldið að Reykholti 29.—30. apríl. Héraðsmót og drengjamót haldið að Faxaborg. Keppt við A. Hún. og Akranes. Sundmót var haldið að Varmalandi. Sam- bandið gekkst fyrir leiðbeinendanámskeiði í Borgarnesi að vorinu. Ungmennasamband Dalamanna. Héraðsþing haldið í maí. Fjórir stjórn- arfundir. Héraðsmót var haldið 24. júlí, keppt í frjálsum íþróttum. Sundmót fór fram í ágúst. Héraðssamband Strandamanna. Héraðsþing haldið 14. apríl. Þrír stjórn- arfundir. Héraðsmót var haldið 17. júní. Keppt var í frjálsum íþróttum. Knatt- spyrnumót fór fram, og sambandið tók þátt í svæðakeppni U. M. F. I. vegna lands arnessþings, Sundsamband Islands, Viku- blaðið ,,Vikan“, Reykjavík, Vikublaðið ,,FáIkinn“, Reykjavík, Dráttarvélar h.f., Reykjavík, Samvinnutryggingar, Reykja- vík, Smjörlíkisgerðin Akra, Akureyri, Bókabúð Rikku, Akureyri, Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri. Linda h.f., Akureyri, Heildv. Tómasar Steingrímsson- ar, Akureyri, Dagblaðið Tíminn, Reykja- vík. Ungmennafélag íslands þakkar gefend- unum vinsemd í garð samtakanna. mótsins að Laugum. Sambandið lagði fram fé til íþróttavalla á Hólmavík og í Kirkju- bólshreppi. Héraðsmót Vestur-ísafjarðarsýslu. Héraðsþing haldið 26. maí á Þingeyri. Fjórir stjórnarfundir. Héraðsmót var haldið að Núpi 2. og 3. júlí. Keppendur í frjálsum íþróttum voru 60 frá fimm félög- um. Keppt var i frjálsum íþróttum og starfsíþróttum. Sóknarpresturinn messaði, framkvæmdastjóri U. M. F. 1. flutti ræðu. Sýnd var leikfimi stúlkna og pilta. Þá fór fram keppni í mælskulist. Keppni fór fram á sambandssvæðinu fyrir börn í fimm greinum frjálsra íþrótta. Þátttakendur voru 109. Iþróttanámskeið fyrir unglinga var haldið að Núpi dagana 20. júní til 2. júlí. Flutt voru fræðsluerindi, kenndur dans og sýndar kvikmyndir. Haldnar voru kvöldvökur og mikið sungið. Unnið var að gróðursetningu trjáplantna í Botni í Dýrafirði. Einstök félög settu niður í eig- in gróðurreiti. Ungmennasamband V.-Húnavatnssýslu. Héraðsþing haldið að Melstað í marz. Héraðsmót var haldið að Reykjaskóla 4. sept. Keppt var í frjálsum íþróttum og sundi. Þátttakendur 30. Keppt var á nýjum íþróttavelli. Um kvöldið var samkoma. Þar flutti Guðm. G. Ilagalín rithöf. ræðu. Skákkeppni fór fram á vegum héraðs- sambandsins, og tóku þátt í henni fjórar 40 SKIN FAX I

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.