Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1967, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.07.1967, Blaðsíða 3
Ungmennafélag íslands 60 ára „Vormenn íslands! - Yðar bfða Sólfar var mikið á íslandi sumarið 1907, er Ungmennafélag íslands var stofnað á Þingvöllum. Keildarsamtök ungmennafélags- skaparins hafa löngum verið gagn- rýnd, en ekki verður um það deilt, að spor félaganna eru óafmáanleg í þjóð- lífinu og landssögunni. Jóhannes Jósefsson, fyrsti formaöur XJMFÍ 1997—1908 Hugsjón ungmenniafélagshreyíing- arinnar skaut rótum hér á landi við hagstæð skilyrði, og merki um vor- yrkjuna má víða sjá og taka yfir lang- an tíma. Þróun mála á Norðurlöndum í bryjun þessarar aldar var hagstæð frelsiskröfum okkar. Þingræði og þjóðræði efldist í Danmörku og í Nor- egi frelsaðist þjóðin undan erlendum yfirráðum. Vorbatinn var að vísu tvísýnn. Danir höfðu háð styrjöld við Þjóð- verja og herir Svía og Norðmanna stóðu albúnir til atlögu árið 1905. Trúin á verkfærið, en ekki á vopn- ið, bjargaði, verkfærið í hendi rækt- unarmannsins og uppbyggjandans. Er öldur átakanna risu sem hæst með Svíum og Norðmönnum, ritaði Friðþjófur Nansen hið mikla átrúnað- argoð norks æskulýðs: „Norska og sænska þjóðin eiga að standa saman. Verði ráðist á Svía munum við Norðmenn rísa upp þeim til varnar af fremsta megni. En til þess verða báðar þjóðirnar að vera frjálsar. Bandalag aðila, sem ekki njóta jafnréttis er hættulegt.“ SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.