Skinfaxi - 01.07.1967, Blaðsíða 5
felld stefnuskrá hans síðar sem stjórn-
málaleiðtoga.
í augum margra er Jónas hinn mikli
flokksmaður og bardagahetja, en
ræktunarhugsjónir er rótin að lífs-
verki hans, brennandi framfarahugur.
Á árunum 1921—1930 voru formenn
U.M.F.Í. traustir menn, er nutu vin-
sælda og virðingar, þeir Magnús
Stefánsson og Kristján Karlsson.
Þennan áratug urðu miklar fram-
farir á íslandi fyrir atbeina ung-
mennafélaga, er nú voru horfnir úr
félögunum. Þeir voru Jónas frá Hriflu
^ryggvi Þórhallsson, bændaleiðtog-
inn ágæti og Ásgeir Ásgeirsson, hurfu
yfir á vígvöll stjórnmálanna og um
hríð var sem herútboð þetta væri fél-
agsskap okkar um megn og heimavíg-
stöðvarnar yrðu vanræktar.
Nýir menn koma fram til forystu.
Aðalsteinn Sigmundsson verður for-
Jónas Jónsson formaður 1917—1921
SKINFAXI
Hesturinn var aðalfarartækið á hátíðinni við
konungskomuna á Þingvöllum 1907, þegar
UMFÍ var stofnað
maður U.M.F.Í. á Þingvöllum 1930. Á
vetrum var hann við kennslu og fé-
lagsleg uppbyggingarstörf. Á sumrum
vann hann lengi í Þrastaskógi. Hann
var alla ævi að leita að gróðurnál í
vorkaldri jörð til þess að veita henni
vöxt og aðhlynningu. Hann mótaði
mjög íþróttalög Hermanns Jónassonar.
Landsmótin, er hófust aftur með
Haukadalsmótinu árið 1940, efldust
við þau lög, og fyrir starf íþróttaskóla
Sigurðar Greipssonar, sem og ung-
mennafélagshreyfingin yfirleitt. Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi, hefur
verið félagsskapnum ómetanlegur
styrkur, hvað íþróttamálin snertir.
Daníel Ágústínusson hefur m. a. unn-
ið mikið starf í íþróttanefnd ríkisins
sem fulltrúi U.M.F.Í. Sigurður Greips-
son hefur verið félagsskapnum styrk
stoð um áratugi.
Hann er eins og fyrstu leiðtogarnir
og aðrir margir hér nefndir og ónefnd-
ir, forystumenn og óbreyttir liðsmenn,
5