Skinfaxi - 01.07.1967, Blaðsíða 15
með orðunum „góð skemmtan11 er þá
vissulega ekki átt við mannspillandi
skrípalæti, en því miður snýr nú
stundum hagnaðarvonin þessu svo við
í höndum þeirrar kynslóðar, sem á að
þroska og göfga þá yngri, að gull þyk-
ir henni tetra en góð skemmtan.
Og þá stöndum við allt í einu og
fyrirvaralítið frammi fyrir þeirri
spurningu, sem er dæmigerð fyrir
okkar tíma, spurningu, sem beinir
kastljósi sínu að okkur, sem eldri er-
um, og eigum samkvæmt reglum ald-
anna, að leiða börn okkar nokkurn
spöl:
Hvað er það, sem gerir það að verk-
um að frá hinum svokölluðu „velferð-
arríkjum“ heyrast sí og æ hávær
klögumál og látlausar upphrópanir
um lífshætti og framferði ungs fólks?
I linnulausri síbylju er því borin á
brýn eyðslusemi, iðjuleysi, drykkju-
skapur, lauslæti, skemmdarfýsn,
glæpahneigð í ýmsum myndum og
misferli hvers konar.
Það er léttast allra hluta að kasta
sökinni á þetta æskufólk vafninga-
laust, og minn^st með krókódílatárum
alls þess, sem við teljum okkur hafa
fyrir það gert og átti auðvitað allt
góðri lukku að stýra. En lítum okkur
nú nær, andartak, og minnumst þess
einkennis, sem hvað mest er áberandi
í einu velferðarríki, og enda af fróð-
um mönnum talin undirstaða viðvar-
andi sællífis, en það er hin öra velta
peninganna, hið háþróaða viðskipta-
kerfi, hið miskunnarlausa kapphlaup
í veiðistöð gróðans. En þar er, því mið-
ur, eins og flest sé sveigt að því marki
að ginna æskufólk — og alveg sérstak-
lega æskufólk, — til þess að eyða sem
hæstri upphæð fyrir sem mest fánýti.
SKINFAXI
Buðmundur Böðvarsson ílytur ræðu sína
á Húsafcllsmótinu
Netin eru lögð langs og þvers. Næst-
um í hverjum búðarglugga má sjá,
hve gífurleg áherzla er á það lögð að
komast sem dýpst ofan í vasa hálf-
vaxinna unglinga. Búðarhola, sem við
hér í daglegu tali köllum „sjoppu“, er
byggð við hverjar skóladyr, — og
verður í rauninni engum lagt til lasts,
er svo gerir, því þar sem lögmál hinn-
ar frjálsu samkeppni ríkir í almætti
sínu, er það geigvænlega harðleikið
hverjum þeim sem tregðast við að
hlýða því. Og það lögmál gerir tæp-
15