Skinfaxi - 01.07.1967, Page 7
Pramkvæmdastjópi UMFÍ
í sumar
Rætt við Stefán Magnússon,
íþróttakennara
Stefán Magnússon íþróttakennari á
Selfossi hefur verið fastur starfsmaS-
ur Ungmennafélags íslands í sumar.
Stefán hefur reynzt mjög ötull og
glöggur starfsmaður, og er það mikið
tjón fyrir samtökin að ráðningartími
hans er aðeins skammur að þessu
sinni, en Stefán er fastráðinn kennari
og verður því að hætta störfum hjá
UMFÍ í september.
Skinfaxi kom að máli við Stefán og
spurði hann um starfið í sumar, en
hann var þá nýkominn úr erindrekstri
á Vestfjörðum.
— Síðan ég hóf starfið í byrjun júlí
hefur starf mitt verið fyrst og fremst
SKINFAXI
hér í skrifstofunni fyrir utan Vest-
fjarðaferðina. Ég hef haft samband
við flest héraðssamböndin í landinu
og boðið þeim aðstoð héðan, og hafa
þau notfært sér það talsvert.
— Eru ekki margir farnir að hugsa
til landsmótsins á næsta ári?
— Jú, ég held að allir vilji gera sitt
bezta til að landsmótið verði sem veg-
legast. Undankeppnin í knattleikjun-
um hefur farið fram í sumar. Þá má
það gjarnan komast á framfæri, að
bæklingar um hinar ýmsu greinar
starfsíþrótta fást nú aftur hér á skrif-
stofunni, og vil ég hvetja ungmenna-
félögin að notfæra sér það.
Kristján Ingólfsson formaður UÍA
7