Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1967, Síða 10

Skinfaxi - 01.07.1967, Síða 10
Jóhannes Sigmundsson, form HSK, dreifir áburði mennafélagar komnir inn á Biskups- tungnaafrétt undir forustu Ingva Þor- steinssonar. Þetta voru félagar úr ýmsum ungmennafélögum í Árnes- sýslu. Sú spá rættist, að ekki myndi erfitt að fá ungt fólk til þessa þarfa verks, og voru þátttakendur jafnt úr uppsveitum og lágsveitum sýslunnar. Ferðast var í langferðabíl, en í öðrum rúmgóðum bíl voru vistir hópsins og „eldhús á hjólum“. Á sunnudeginum var sáð grasfræi og áburði í stórt svæði, sem er að verða eyðingunni að bráð, norðaustan Bláfells. Það var gengið rösklega til verks, enda þátttakendur allir meira og minna vanir slíkum störfum. Þegar kvölda tók og áætlunarverk- inu á þessum stað var lokið, hélt allur hópurinn inn í Árskarð í Kerlingar- fjöllum, en það var áformað að gista í sæluhúsi Ferðafélags íslands. Var þar neytt ríkulegs kvöldverðar, en um kvöldið var skíðahótelið heimsótt og setin þar kvöldvaka. Snemma á mánudagsmorgun var haldið til Hvítárness. Þar var fræi og áburði dreift í jaðar Tjarnheiðar, sem er eins og opið sár á margra kílómetra svæði. Allt þetta verk gekk eins og í sögu. Þetta var glaour og áhugasam- ur hópur, og starfið var leikur einn. Síðdegis var safnast saman til „loka- hófs“ við sæluhúsið í Hvítárnesi. Þar var m. a. háð „S!eifarmót“, en slík mót halda sunnlenzkir ungmennafé- lagar við ýmis sérstök tilefni. Keppt er um óvenjulegan verðlaunagrip, gamla trésleif, en um uppruna hennar ganga ýmsar þjóðsögur. Sigurvegari í þessari hörðu íþróttakeppni var Böðv- ar Pálsson á Búrfelli í Grímsnesi. Það voru ánægðir ferðalangar, sem héldu úr óbyggðum þetta sumarkvöld. Vel unnu verki fylgir alltaf sönn á- nægja, sem eru haldbeztu vinnulaun- in. Það var líka upplyfting og góð skemmtun að ferðast inn á öræfin í glöðum hópi, og allt þetta tengir ung- mennafélaga traustari böndum. Bisk- upstungnamenn í hópnum voru auð- vitað fróðastir um sinn afrétt, og veittu lágsveitamönnum óþrjótandi fræðslu um staðhætti og sögu þessa landshluta allt frá sköpun landsins til þessa dags, svo sem eldgos, gróður- far, ár og fallvötn, atvinnusögu, svað- ilfarasögur og draugasögur. Reyndust sérstaklega þeir Arnór á Bóli og Hreinn í Dalsmynni slíkir fræðaþulir, að ekki er hægt að láta þess ógetið. Hver hinn verklegi árangur af þess- ari ferð verður, er eftir að koma í ljós. Alls var sáð einni lest af grasfræi og 8 lestum af áburði. Veðráttan var 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.