Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 11

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 11
Skinfaxi hitti nýlega að máli Krist- jan Ingólfsson, formann UÍA, og innti hann eftir fréttum að austan, einkum um undirbúning landsmóts UMFÍ að Eiðum r.æsta sumar og um Sumarhá- tíð UÍA í Atlavík, sem vakið hefur verðuga athygli fyrir menningarbrag °g fjölbreytilega dagskrá. Kristjáni sagðist svo frá: Landsmótið að Eiðum Undirbúningur gengur samkvæmt á- setlun. Unnið er sleitulaust að íþrótta- vallagerð. Sáð var í grasvöllinn í sum- ar, og vonum við að hann verði vel hæfur til notkunar næsta sumar. Einnig er unnið að gerð knattspyrnu- vallar, en handknattleiksvöllurinn er þegar fullbúinn. Þetta eru kostnaðarsamar fram- kvæmdir, og kemur sér vel sá hagn- aðu.r, sem við fengum af skógarhátíð- inni, en hann fer allur í þessi verk- efni. Á landsmótinu verður sett upp bráðabirgðasundlaug, eins og var á landsmótinu á Laugarvatni, en við verðum að hita vatnið upp með olíu- kyntum kötlum. Mótssvæðið allt hefur verið skipu- lagt í stórum dráttum. Allt verður gert til að vanda til móttöku lands- mótsgesta. M. a. verða rúmgóð bíla- mjög óhagstæð eftir að sáning og °g áburðardreifing fór fram, þannig, að vel getur verið að uppskeran verði lakari en ella. En það er ekki höfuð- atriði. Þetta er aðeins byrjunin á noiklu verki, og alltaf má gera ráð fyrir einhverjum áföllum af völdum veðráttunnar. Það er spá okkar, að þessi land- græðsluferð sé upphafið að góðu og arangursríku starfi. í ungmennafélög- unum eru vinnufúsar hendur, sem eru reiðubúnar til starfa í þágu þessa Þjóðþrifamáls. Hér er verðugt verk- efni fyrir ungmennafélögin. Unga kynslóðin verður að horfast í augu við þá staðreynd, að þrátt fyrir alla ræktun undanfarinna ára, er gróður- SKINFAXI lendi landsins að minnka ár frá ári. Þessa eyðingu landsins verður að stöðva og súna þróuninni við. Við íslendingar horfum með hryll- ingi á þær aðfarir ýmsra ríkja heims að leggja undir sig landflæmi með vopnavaldi og manndrápum, og meg- um þá lofa hamingjuna fyrir hnatt- stöðu okkar. Okkar landvinningastríð verður ekki háð með manndrápstækjum eða ofbeldi við aðrar þjóðir. Það verður háð með vinnandi höndum gegn eyð- ingarmætti óblíðra náttúruafla. Þann- ig ætlum við að auka nytjalandið, stækka ísland. Það er lífshagsmuna- mál ungu kynslóðarinnar að sigra í þeirri styrjöld. 11

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.