Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 19

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 19
Þú lœrir af bókum um þrengingar íslenzkrar þjóðar og þrekraun til sævar og lands og kúgun og áþján, hann afi þinn kunni þá sögu og enn betur foreldrar lians, sem vissu það skást að vænta sér góðs eftir dauðann, er „sál fer til sœluranns“. Þú lærir það og, að við lyftum því Grettistaki að losa um viðjar og bönd. — En við gleymum svo fljótt. Hve auðvelt er löngum að lokka í Ijónsginið óvitans hönd. Því streymir nú blóð þinna systkina svartra og hvítra, því loga hin hersetnu lönd. Og harpan hans afa skal vara þig við þeirri hœttu, sem vitjar þín jafnt og þétt: Þér er ekki bœrt að bindast til neinnar áttar þeim böndum er skerði þinn rétt í landi þín sjálfs, — því þá ert þú heillum horfin, í sólleysið verður þú sett. Þitt hlutverk er stórt: að stefna til þeirrar aldar er styrjöldum breytir í frið, — og láttu ekki svíkja þau loforð sem þér voru gefin, þar liggur þín framtíð við: hinn svefndrukkni varðmaður vaknar um seinan, í angist, með fjandmenn á hvora hlið. — Þú veizt eins og ég, að fljótt líður fagurt vorið, þá fækkar um söng og dans, og skyldan hún kemur og kallar þig til þess að verja þinn knérunn og arin hans, og gerir þú það, þá átt þú um eilífð þitt frelsi og fegurð þíns föðurlands. En lát þér ei íþyngt að hreimi gamallar hörpu, sem hefur um stund verið mín, að vályndur heimur unni þér ævinlegs friðar er ósk mín og von til þín, og njót þeirrar stundar er stjarnan fegurst af öllum í heiði við Hraundranga skín. SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.