Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 21

Skinfaxi - 01.07.1967, Page 21
Sigurður Greipsson hópinn“ og talaði við nemendur úr 40 „árgöngum“. ,>Eg var oft harður við ykkur, en ég meinti vel“, sagði Sigurður meðal annars. Það er einmitt þetta, sem nemendur Sigurðar gera sér ljóst, er þeir meta vist sína í íþróttaskólanum í Hauka- dal. Það er ungum mönnum hollt að aga bæði huga sinn og líkama og beita sJálfa sig hörku. Þetta læra menn hjá Sigurði, og þess vegna vita þeir að hann meinar vel. Það er því maklegt að Sigurður verði var við ræktarsemi fternenda sinna í eigin garð og til skól- ans, því allir telja þeir sér góðan á- vinning að dvölinni í Haukadal. Að kvöldi afmælisdagsins var hald- ið hóf í Aratungu, Sigurði til heiðurs. Það var Héraðssambandið Skarphéð- lnn og sveitungar Sigurðar, sem fyrir skinfaxi hófinu stóðu, en það sátu mörg hundr- uð manns. Hér verður ekki rakinn æviferill Sigurðar Círeipssonar né þulin saga íþróttaskólans í Haukadal, enda væri það að bera í bakkafullan lækinn, svo mikið sem um það hefur verið ritað undanfarið. Fyrir ungmennafélagshreyfinguna væri það hins vegar fróðlegt og við- eigandi að reyna að meta starf Sig- urðar og skóla hans fyrir æsku lands- ins, fyrir iþróttastarfið og félagsmál- in í dreifbýlinu, því að þessum skóla hefur frá upphafi verið stjórnað af einum bezta forystumanni ungmenna- félaganna á íslandi og í anda þeirra. Það þarf ekki að vekja furðu, þeim er Sigurð þekkja, þótt margir freist- ist til þess að líkja honum við hetjur Sögualdarinnar eða telji að Sigurð Greipsson vanti í Njálu. Ef hægt er að tala um „íslendingseðli“, þá er það eflaust að finna í Sigurði Greipssyni. Þess vegna finnst mörgum að þeir Ari fróði, Grettir, Gunnar, Egill og fleiri séu á ferli í Sigurði Greipssyni. En staðreyndin er, að Sigurður er 20. aldar maður og hefur rekið skóla í 40 ár. Það er því furðulegt, að í þeim mörgu, maklegu hrósyrðum, sem fall- ið hafa um Sigurð, virðast menn hafa gleymt þeim eiginleika, sem hlýtur að gera verðleika hans stærsta, þegar litið er á lífsstarf hans. Ég á hér við það, hversu frábær kennari Sigurður Greipsson er. Allir, sem hlýtt hafa á Sigurð flytja ræðu, vita, hversu vel hann nær eyrum manna. Hann kann þá list að vekja athygli annarra á máli sínu, enda hugsunin oft frumleg og skemmtileg og málið tæpitungulaust. 21

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.