Skinfaxi - 01.07.1967, Page 28
Af vettvangi
ungmennafélaganna
Ungmennasamband
Skagafjarðar
hélt ársþing sitt á Sauðárkróki 30.
apríl s. 1. Formaður UMSS, Guðjón
Ingimundarson, Sauðárkróki, flutti
skýrslu stjórnarinnar fyrir s. 1. starfs-
ár. í henni kemur m. a. fram eftirfar-
andi.
í sambandinu eru 13 ungmennafé-
lög, með 592 félagsmenn, þar af 444
gjaldskylda.
Æskulýðsmálanefnd sambandsins
gekkst fyrir tveirn kvikmyndasýning-
um og tveim unglingadansleikjum á
sambandssvæðinu. Þá efndi nefndin
til veiðiferðar og útilegu og gekkst
fyrir skíðaæfingum.
Þrjú félög sendu sveitir í sveita-
keppni UMSS í skák, og 12 þátttak-
endur voru í hraðskákmóti sambands-
ins.
Á vegum sambandsins störfuðu að
íþróttakennslu, þeir Ingimundur Ingi-
mundarson, sem kenndi einkum
frjálsíþróttir og handbolta, Guð-
mundur Þ. Harðarson, sem var þjálf-
ari í sundi um stuttan tíma og Páll
Ragnarsson, sem þjálfaði og sá um
knattspyrnuæfingar hjá Umf. Tinda-
stól og um leið hjá sambandinu að
því er varðaði þátttöku þess í 3. deild-
ar keppni KSÍ.
Nokkur vöxtur var í frjálsum íþrótt-
um á árinu, og fleiri félög en áður
sendu keppendur á héraðsmótið. Má
þakka það störfum Ingimundar að
frjálsíþróttakennslu hjá félögunum.
Fimm frjálsíþróttamót voru haldin, og
utan héraðs átti sambandið keppendur
á sjö mótum.
Sundfólki sambandsins gekk vel á
árinu, og var töluverður þróttur í
störfum þess og þátttöku í mótum
innan héraðs og utan. Sex sundmót
voru haldin á Sauðárkróki.
Samkvæmt skýrslu sambandsins
um áramót 1965—’66 er tala iðkenda í
hinum ýmsu íþróttagreinum þessi:
Badminton.............. 25
Frjálsar íþróttir .... 103
Handknattleikur .... 35
Knattspyrna ........... 85
Körfuknattleikur .... 30
Skíðaíþróttir.......... 61
Sundíþróttir ......... 115
Á þinginu var afhentur Afreksbikar
Samvinnutrygginga, en hann hlýtur
árlega fræknasti íþróttamaður hér-
aðsins hverju sinni. Að þessu sinni
hlaut Gestur Þorsteinsson bikarinn,
og kom það engum á óvart. Gestur
sýndi góðar framfarir á árinu og náði
prýðilegum árangri í frjálsíþróttum.
Hann setti m. a. UMFÍ-met í lang-
stökki og einnig setti hann fjögur hér-
28
SKINFAXI