Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 4
Að vera með
Að na aran izri
Ingólfur Hjörleifsson
Nú nálgast Ólympíuleikar óðfluga og
afreksfólkið er að leggja síðustu hönd á
undirbúning fyrir þessa mestu íþróttahátíð
heimsins. Við vonum auðvitað að
íþróttafólk okkar uppskeri eins og það
hefur sáð.
En um leið skulum við ekki gera okkur of
miklar vonir, halda þeim í það minnsta
innan skynsemismarka. Og mörgum okkar
er einnig hollt að hafa í minní ei nkunnarorð
Ólympíuleikanna um að þátttakan sé
verðlaunum ekki síðri. Það er ekki aðeíns
heiður heldur einnig þroskandi fyrir
þátttakendur. Við búumst t.d. ekki við að
þeir íslensku siglingamenn sem taka þátt í
leikunum fyrir okkar hönd, komi heim með
verðlaun í barminum. En það er víst að þeir
koma heim með reynslu sem nýtist án efa
ekki aðeins þeim sjálfum heldur
s igl ingaíþróttinni í heild hér á 1 andi. Þessir
þættir hafa stundum viljað gleymast í
fjölmiðlaumræðunni.
En um leið er eðlilegt að vona að okkar
fremsta íþróttafólk komist á verðlaunapall
á leikunum. Mikilvægast er því að þessir
tveir þættir haldist í hendur í hugum okkar
þegar við fylgjumst með okkar fólki í
september. Það er okkar fólkí míkíll
heiður að komasttii Seoul og þroskandi en
um leið er það alveg víst að menn eins og
Einar Vilhjálmsson, Ragnheiður
Runólfsdóttir, Vésteinn Hafsteinsson,
handboltastrákamir og siglíngamennimir
setja markið hátt.
IH
Útgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjórf.Ingólfur Hjörleifsson. - Ábyrgðarmaður: Pálmi
Gíslason. - Stjóm UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórir Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson,
gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson, ritari. Meðstjómendur:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason,
Sigurbjöm Gunnarsson. Varastjóm: Magndís Alexandersdóttir, Hafsteinn Pálssson, Matthías
Lýðsson, Sæmundur Runólfsson. - Afgreiðsla Skinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík, S:91-12546 - Setning
og umbrot: Skrifstofa UMFÍ. - Prentun: Prentsmiðjan Oddi. - Pökkun: Vinnustofan Ás.
Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki stefnu né skoðanir
blaðsins eða stjómar UMFÍ.
4
Skinfaxi