Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 25
skipta á milli að þjálfa elsta og yngsta
hópinn.
En við þurfum að æfa vel í 2 1/2 mánuð
fram að 2. deildinni. Þetta er góðurhópur,
þau stóðu sig öll mjög vel. Þvf var t.a.m.
skotið að mér á AMÍ mótinu með hann
Geir Birgis, að það mætti sjá það á honum
að hann hefði fengið að þróast eðlilega,
náttúrulega sem sundmaður. Það vill oft
gerast að efnilegt fólk er tekið of snemma
í stífa þjálfun, kýlt áfram með erfiðum
lyftingum og þar fram eftir götunum. Það
hefur hins vegar sýnt sig á honum að oftast
eru hreinar sundæfingar það besta til að
byrja með.
En það verður gaman að fylgjast með
honum og hópnum öllum í framtíðinni.
Og langtímamarkmiðið hjá okkur er
auðvitað Landsmótið hér í Mosfellsbæ,
ná upp góðu liði fyrir það. Við ætlum að
halda uppi merki UMSK og
Mosfellsbæjar”, segir Halldór að lokum.
1H
Ræktun lýðs og lands
saga Ungmennafélags íslands 1907 -1982
Við viljum minna ykkar á þessa
bók sem er nauðsynleg fyrir alla
þá er vinna að og fylgjast með
málefnum ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Þessi bók er til sölu hjá héraðs-
samböndum, stjórnarmönnum
UMFÍ og á skrifstofu UMFÍ.
Bókin kostar sem fyrr
aðeinskr. 1000
Ungmennafélag Íslands75 ára
1907-1982
Gunnar Kristjánsson tók saman
Ungmenna og íþróttafélög.
Fáið myndalistann okkar næst þegar
þið þurfið að veita skemmtilega
viðurkenningu.
Við getum ýmislegt gert fyrir ykkur.
Skinfaxi
25