Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 29
F>'á Flaíeyri. Snyrtilegur og aðlaðandi bœr. Að vinna eins og sleggjur Það á ekki síður við Flateyri en mörg önnur sjávarpláss hér á landi að lífið snýst um fisk. Svo átti einnig við þaað síðdegi sem ég var á ferð um plássið. Utan við Hjálm (útgerðarfyrirtækið á staðnum) gekk ég fram á þrjár manneskjur sem voru komnar út í sólskinið. Þau Þau íris Reynisdóttir, 14 ára, Ingvi Hrafn Oskarsson, 14 ára og Isleifur Guðbjömsson, 20 ára voru alveg til í að setjast út undir vegg í sólskini og rabba. -Því var hvíslað að mér að fólk vinni hér eins og sleggjur, frá fimm fimm. “Eins og er vinnum við svona”, svarar Ingvi, “en þetta er ekki alltaf svona. Við erum búin að vinna svona þessa viku.” Isleifur: “Þetta fer allt eftir því hvers konar afla er verið að landa og á hvaða árstíma það er. Þetta er ekki eins mikið á Suðureyri, t.d. Það er mikið að gera á vorin, þegar grálúðan er veidd. Þá getur þetta verið svona í einar átta til níu vikur í striklotu.” -Iris og Ingvi eru í skóla á Flateyri en Isleifur hefur lokið stúdentsprófi og var að kenna í grunnskólanum á Flateyri í vetur, þ.á.m. þeim Irisi og Ingva. Isleifur var spurður hvemig það hefur gengið. “Eigum við nokkuð að ræða það hér og nú! En í alvöru, þá var það alveg frábært, mjög gaman. Eitt af því skemmtilegasta íris Reynisdóttir, Ingvi Hrafn Óskarsson og ísleifur Guðbjörnsson. sem ég hef fengist við.” -Eruð þið eitthvað í íþróttum? Iris: “Eg er aðallega í frjálsum íþróttum.” Ingvi: “Ég er í fótbolta.” -Nú hefur maður heyrt af góðum árangri í sundi. ísleifur: “Það er það góð aðstaða ntiðað við það sem gerist á svona stöðum að sundið hefur verið töluvert áberandi. -Er það eins hér og víða annars staðar sem fólk hættir í íþróttum þegar það er komið yfir 15 til 16 ára aldurinn? íris: “Það er staðreynd hér eins og annars staðar. Ég veit ekki almennilega hver ástæðan er. Fólk hefur verið eitthvað á æfingum á sumrin og svo mæta þau ekki allt í einu eitt sumarið. Kannski er það vinnan. Fólk hefur kannski ekki kraft í það að vera að vinna frá 4 eða 5 á mor- gnana til 5 eða 6 á kvöldin og mæta síðan á æfingar. Svo rofnar þetta kannski eitthvað þegar fólk byrjar að fara í skóla suður.” -Þannig var það með ísleif. Hann er frá Siglufirði en var á Flateyri á sumrin. Þegar hann hóf menntaskólanám í Reykjavík 16 ára gamall hætti hann að stunda íþróttir. Hann er spurður að því hvort hann ætli að setjast hér að. Isleifur: “Ekki að sinni. Ég er að fara í háskóla í Reykjavík í haust. En mér hefur liðið mjög vel hér og ef atvinnutækifæri er fyrir hendi sé ég ekki neina ástæðu fyrir að búa ekki á þessum stað.” Ingvi: “Það flytja fjölskyldur héðan á hverju ári, sýnist mér og ég held að það þurfi mikið að gerast til að það breytist. Isleifur: “Það hefur að mikið að segja að fjölskyldan slitnar í sundur ef krakkar fara í framhaldsskóla 16 ára. Það eru ekki allir sem vilja það. Iris: “íris: “Ég er að flytja suður. Þjónustan hefur nrikið að segja miðað við Reykjavíkursvæðið. Fólk fer suður í tannréttingar t.d. og aðra læknisþjónustu og það má lengi telja hvað þetta varðar. En mér finnst ágætt að vera hérna. Höfum það síðasta orðið. IH Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.