Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 8
Á leið til Seoul * ■ r — % JT wá HHKr ■ | Ú* m ■y, ii Ólympíuhópurinn að undanskilinni Helgu Halldórsdóttur sem var erlendis. Mynd, Charles Egill Hirt. Þráinn Hafsteinsson fjallar um frjálsíþróttafólkið sem fer á Ólympíuleikana í Seoul Þegar þessar línur eru skrifaðar hafa átta frjálsíþróttamenn verið valdir til keppni á Olympíuleikunum í Seoul sent hefjast 23. september n.k. Ólympíunefnd Islands setti á sínum tíma lágmörk fyrir keppni í hinum ýmsu greinum sem hafa verið mjög umdeild. Nefndin hundsaði í raun lágmörk Alþjóðaólympíunefndarinnar. Nú kann einhver að segja sem svo að íslensku lágmörkin hafi verið sett hærri en alþjóðlegu lágmörkin eru, eins og algengt er meðal annarra þjóða. Svo var þó ekki hjá íslensku nefndinni sem setti sum íslensku lágmörkin allt frá 8% hærri en alþjóðalágntarkið, önnur á svipuðu róli og alþjóðalágmörkin og enn önnur allt niður Þráinn Hafsteinsson skrifar. í 6 % lakari en alþjóða lágmörkin. Svona endaleysa er algerlega óþörf í frjálsíþróttum því barist er um sentimetra og sekúndubrot og öruggt mál að alþjóðaólympíunefndin byggir sín lágmörk á mjög áreiðanlegum tölulegum upplýsingum. Maður myndi því ætla að alþjóðasamtökum Óympíuleikanna væri 8 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.