Skinfaxi - 01.08.1988, Page 8
Á leið til Seoul
* ■
r — % JT wá HHKr ■ |
Ú* m ■y, ii
Ólympíuhópurinn að undanskilinni Helgu Halldórsdóttur sem var erlendis. Mynd, Charles Egill Hirt.
Þráinn Hafsteinsson fjallar um
frjálsíþróttafólkið sem fer á
Ólympíuleikana í Seoul
Þegar þessar línur eru skrifaðar hafa átta
frjálsíþróttamenn verið valdir til keppni á
Olympíuleikunum í Seoul sent hefjast 23.
september n.k. Ólympíunefnd Islands
setti á sínum tíma lágmörk fyrir keppni í
hinum ýmsu greinum sem hafa verið mjög
umdeild. Nefndin hundsaði í raun
lágmörk Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Nú kann einhver að segja sem svo að
íslensku lágmörkin hafi verið sett hærri en
alþjóðlegu lágmörkin eru, eins og algengt
er meðal annarra þjóða. Svo var þó ekki
hjá íslensku nefndinni sem setti sum
íslensku lágmörkin allt frá 8% hærri en
alþjóðalágntarkið, önnur á svipuðu róli og
alþjóðalágmörkin og enn önnur allt niður
Þráinn Hafsteinsson skrifar.
í 6 % lakari en alþjóða lágmörkin. Svona
endaleysa er algerlega óþörf í
frjálsíþróttum því barist er um sentimetra
og sekúndubrot og öruggt mál að
alþjóðaólympíunefndin byggir sín
lágmörk á mjög áreiðanlegum tölulegum
upplýsingum. Maður myndi því ætla að
alþjóðasamtökum Óympíuleikanna væri
8
Skinfaxi