Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 9
treystandi til að setja lágmörk sem gengju jafnt yfir allar greinar. Rökréttast hefði því verið að íslensku lágmörkin hefðu ÖLL verið sett skör ofar en alþjóðlegu lágmörkin. I raun tel ég að Ólympíunefndin hafi loks gert sér grein fyrir þeim mistökum sem hér um ræðir, en ekki viljað opinbera það öðruvísi en svo að þeir hafa nú skyn- dilega falið Frjálsíþróttasambandinu en- danlegt val á frjálsíþróttaliðinu og þar með í raun numið lágmörkin óopinber- lega úr gildi. Auðvitað hlýtur það að vera í valdsviði sérsambandanna að velja en- danlega keppendur. Mér þætti til dæmis undarlegt ef Ólympíunefndin ætti að velja endanlega þann 15 manna hóp sent keppir í handknattleik en ekki þjálfari liðsins Bogdan Kowalzsik. Meginstefna varðandi þann árangur sem íslensku kep- pendumir skulu hafa náð áður en þeir eru valdir er hinsvegar í valdi Ólympíunefndar að ákveða. Ólympíunefndin á síðan að fela sérsamböndunum að setja þau lágmörk sem til þarf, til að ná settu heildarmarki. Nóg um lágmörkin að sinni. Keppendur íslands í frjálsíþróttum. Eggert Bogason, kringlukastari. Ólympíuleikarnir verða frumraun Hggerts á stómióti af stærstu gerð. Undir stórmót flokka ég Ólympíuleika, Heimsmeistaramót og Evrópu- meistaramót. Eggert hefur verið að bæta sig hægt og sígandi síðustu árin og er nú niun öruggari með köst upp að 60 metrum en hann hefur nokkurn tíma áður verið. Möguleikar Eggerts á að komast í 12 ntanna úrslit eru þó litlir því líklega þarf að kasta um 62 metra til að komast í hóp þeirra 12 bestu. Kast yfir 58 metra í un- dankeppninni væri vel viðunandi og 60 m. kast mjög gott, þar sem hver kastari fær aðeins þrjár tilraunir. Vésteinn Hafsteinsson, kringlukastari. Vésteinn hefur bæði kastað langt á síðustu árum og keppt á stórmótum. Stóru köstin hafa hinsvegar látið á sér standa á stórmótunum hingað til en vonandi að breyting verði á nú. Raunhæft takmark Vésteins ætti að vera að komast í 12 manna úrslit. Köst á bilinu 62-63 m. eru ekkert nýnæmi fyrir Véstein og því alls ekki óeðlilegt að stefna í úrslitin. Vésteinn hefur átt við smávægileg meiðsli að stríða um nokkum tíma í hásinum sem hafa tekið það fínasta af endakrafti útkastsins í burtu það sem af er þessu keppnistímabili. Nái Vésteinn sér fullkomlega í hásinunum fyrir leikana eru mun meiri líkur á góðu svifi kringlunnar og löngu. Þegar í undankeppnina er komið snúast málin um að framkvæma það sem æft hefur verið mörg þúsund sinnum og passa sig á að ætla sér ekkert meira en það sem gert hefur verið á hver- jum degi svo mánuðum skiptir og jafnvel árum, að kasta tæknilega vel og afslappað. "Þegar í undankeppninaer komið snúast málin um að framkvæma það sem æft hefur verið mörg þúsund sinnum og gæta þess að ætla sér ekkert meira en það sem gert hefur verið á hverjum degi svo mán- uðum skiptir og jafnvel ár- um,..." Sigurður Einarsson, spjótkastari. Sigurður er að mörgu leyti í sömu sporum og Vésteinn, hefur kastað langt á síðustu árum en ekki náð sér á strik á stóru mótunum. Sigurðurhefurátt við meisli að stríða í baki í sumar og hefur það háð honum það sem af er sumri. Sigurður er geysilega öflugur kastari og getur gert stóra hluti nái hann að nýta það sem í honum býr. Til gamans má geta þess að Sigurður er einn sterkasti og kraftmesti spjótkastari heims ef tekið er mið af getu í ýmsum grunnæfingum spjótkastsins. Þessi kraftur hlýtur að vera Sigurði mikill sálrænn styrkur. Það tekur tíma fyrir alla íþróttamenn að læra að nýta sér þá hæfileika sem þeir eru gæddir. Sigurður stendur nú á þeim þröskuldi að gefa tækninni lausan tauminn og yfirvinna óþarfa spennu og átök sem hafa komið í veg fyrir að hann stigi yfir þröskuldinn fram að þessu. Með þeirri miklu reynslu og þroska sem Sigurður er að ná í grein sinni kæmi mér ekki á óvart að sjá 77 til 80 m. kast frá honum í undankeppninni. Líklegt er að 80 m. kast dugi inn í úrslit og ef Sigurður yrði á bilinu 10-14 hlyti það að teljast mjög góður árangur. Einar Vilhjálmsson, spjótkastari. Einar er í sérflokki okkar íslensku kep- penda. Hann hefur verið meðal bestu spjótkastara heims síðastliðin ár, kastað langt og náð langt á stórmótum. Frammistaða hans á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984 var mjög góð þar sem hann á eftirminnilegan hátt náði 6. sæti. Þetta þótti að margra áliti ósigur fyrir Einar vegna þess að fjölmiðlar og fleiri aðilar höfðu sprengt væntingarnar upp úr öllu valdi. Það vissu fáir að Einar átti við meiðsli að stríða fyrir Ólympíuleikana Skinfaxi 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.