Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 30
Krakkarnir á Suðureyrarvelli. Hjá þeim rœður bjartsýnin ríkjum.
Ekkert mál
Ef finna þarf einhverja af yngri kynslóðinni til þess að ræða við þegar
komið er ípláss á við Suðureyri er bara að fara á íþróttavöllinn. Það gerði
ég á Suðureyri. Þar var fullt af krökkum að leik og hressileikinn og
bjarsýnin réði ríkjum. Ekkert mál.
“Strákarnir eru í fótbolta og stelpurnar eru í frjálsum”, hrópuðu
strákarnir, þegar spurt var hvað krakkar þar í bæ legðu helst stund á. Ekki
voru nú stelpumar alveg til í að samþykkja þetta.
“Rugl og vitleysa. Ég er í fótbolta og hún líka”, sagði ein þeirra og benti
á vinkonu sína. Strákamir mótmæltu ekki.
Þau ætluðu öll að taka þátt í héraðsmótinu á næstunni og spurðu mig
hvort mér fyndist völlurinn ekki orðinn fínn. Ég jánkaði því.
“Okkur vantar bara þjálfara. Það er furðulegt að ekki sé hægt að finna
einn þjálfara til að koma hingað”, héldu þau áfram. “Þetta er fínn staður.
Það er lítið að gerast í félaginu (Stefni) núna en ég er viss um að það er
nóg af fólki sem er til í að vinna í félaginu. Ekkert mál.”
IH
Sœrún Sigurbjörnsdóttir.
Nú vantar bara
þjálfarann
Á Suðureyri hitti ég 15 ára stúlku sem
Suðureyringar sögðu nokkuð efnilega, \
Særúnu Sigurbjömsdóttur.
“Ég er í öllu sein ég kemst f’, sagði
Særún, aðspurð um það hvað hún
stundaði helst. “Og það er nú lítið
annað en knattspyma og frjálsar. En
það er líka alveg nóg. Foreldrar mínir
eru mjög áhugasamir í íþróttunum og
styðja mig vel. En það er enginn
þjálfari í sumar á Suðureyri og því
sjáum við krakkarnir um þetta sjálf,
hlaupum og stökkvum.”
-Nú er héraðsmót um næstu helgi.
“Já, það lítur nokkuð vel út með það.
Völlurinn hér á Suðureyri er að verða
tilbúinn eftir miklar endurbætur við
það breytist aðstaðan mjög rnikið. Nú
vantar okkur bara þjálfara en hann
kernur sjálfsagt ekki í sumar.”
-Særún keppti á Landsmótinu fyrir
HVÍ. Hvemig var sú reynsla?
“Það var alveg frábært að koma á
Húsavík. Þetta var í fyrsta sinn sem ég
kern á svona stórmót og það var alveg
ógleymanlegt.”
Særún hefur náð nokkuð góðum áran-
gri í frjálsíþróttum miðað við aðstæður.
Hún var í sumarbúðum HVÍ á Núpi í
Dýrafirði og líkaði nijög vel.
1H
30
Skinfaxi