Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1988, Side 13

Skinfaxi - 01.08.1988, Side 13
Ragnheiður Runólfsdótiir og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Þau urðu fyrst til að ná lágmörkunum fyrir Ólympíuléikana í Seoul í S-Kóreu. meðal þjóða sundheimsins á síðastliðnum árum. Þjálfarar eru opnari en áður að tjá sig um þær aðferðir sem þeir nota við þjálfunina. Þetta á einnig við unt þjálfara A-Evrópuþjóða. Þess er því að vænta að það verði sund- menn frá mörgum þjóðlöndum sem synda munu í úrslitasundum Ólympíuleikanna í Seoul. Og eitt er nærri víst, einhver sundmaður eða sundkona mun koma á óvart og sigra eða vinna til verðlauna, án þess að búist sé við því fyrirfram. Þetta gerist nærri því á hverju alþjóðlegu meistaramóti sem haldið er. Möguleikar íslands í sund- keppninni Þegar unnið var að gerð viðmiðunartíma fyrir Ólympíuleikana hjá Sundsambandi Islands, var reynt að afla sem allra bestu upplýsinga um úrslit alþjóðlegra meistaramóta og afreka í heiminum á árunum 1982-1986. Markmið þessarar vinnu var að finna viðmiðunartíma sem skilaði sundfólkinu í miðjan hóp keppenda eða betri. Það var öllunt ljóst að íslenska sundfólkið þurfti að taka stórstígum framförum til þess að þessum árangri yrði náð. Þess vegna voru viðmiðunartímarnir fyrir Ólympíuleik- ana tengdir lágmörkum Sundsambands- ins fyrir Heimsmeistaramótið árið 1986 og Evrópumótið 1987. Sundfólkið íslenska hefur tekið stórstígum framförum á s.l. fjórum árunt. Þegar lágmörkin voru sett þótti mörgum nóg unt og töldu það vonlítið. Þessirsömu einstaklingar hafa æft af kappi og náð viðmiðunartímunum. Fáar íþróttagreinar eru því í eins örri þróun og sundíþróttin. Eftir nærri átta ára hæga framför hefur alþjóðlegur árangur tekið miklunt framförum. Ein ástæða þessa er að nú, í fyrsta sinn síðan 1976, mun allt besta sundfólk heimsins keppa um Olympíumeistartitla. Það verður því enginn mömmuleikur að standa sig vel í sundkeppninni í Seoul. En markmiðið er að gera sitt besta, helst örlítið betur og það mun íslenska sundfólkið reyna. Lítum þá á möguleika þeirra og hverjir koma til meða að berjast um meistaratitlana. Eðvarð Þór Eðvarsson, 100 og 200 m. baksund. Eddi, eins og hann er kallaður í okkar hópi, tók stórstígum framförum árið 1985. Hann kom öllum á óvart og náði í 6. sæti á Evrópumeistaramótinu 1985 í 100 m . baksundi og 9. sæti í 200 m. baksundi. Þennan árangur bætti hann svo, þegar hann krækti í 4. sætið í 200 m. baksundi á Evrópumeistaramótinu í Strassborg í fyrra. Magnús Már Ólafsson. Möguleikar Edda til að ná langt eru miklir. Eg veit að markmiðið í fyrstu atrennu er að ná inn í 8 manna úrslit. En til þess að það takist verður Eðvarð að synda á sínum bestu tímum, bæði í 100 og 200 metrunum. Það eru margir sundmenn, sem munu berjast um sigurinn íbaksundsgreinunum íSeoul. Líklegasturtil sigurserþóheims- methafinn í 100 og 200 metra baksundi, Sovétmaðurinn, Igor Polianskiy. Hann bætti nýlega heimsmetið í 100 m. baksundi tvívegis og er það nú 55.13 sek. Til samanburðar má geta þess að er Islandsmet Eðvarðs 57.15 sek. Nýlega syntu einnig tveir sundmenn frá Kanada undir 56.o sek. 1200 m. sundinu verður baráttan einnig hörð en þar eru möguleikar Polianskiys hvað mestir. Aðrir sundmenn sem korna til með að keppa um verðlaun eru V- Þjóðverjamir Frank Hoffmeister og Jens- Peter Berndt, Tamas Deutsch frá Ungver- jalandi og Stefano Battistelli frá Ítalíu. Til gamans má geta þess að báðir “V- Þjóðverjarnir” eru flóttamenn frá A- Þýskalandi. Einnig má reikna með að einhverjir Bandaríkjamenn blandi sér íbaráttuna en lítið hefur borist af fréttum frá bandaríska úrtökumótinu. Ragnheiður Runólfsdóttir, 100 og 200 m. bringusund. Ragnheiður hefur loksins tekið miklum framförum í ár, eftir tveggja ára stopp hvað framfarir í 50 m. braut varðar. Það má segja að framfarirnar komi á réttum tíma, því hún þurfti á þeim að halda til þess að ná viðmiðunartímunum á leikana. Það verður við ramman reip að draga fyrir Ragnheiði. Ég held þó að takist henni að bæta sig nokkuð, þá á hún möguleika á að komast í B-úrslit þ.e. úrslit um 9.-16 sætið. Ég á von á því að það verði sundkonur frá Evrópu, sem koma til með að vinna flest verðlaunin í bringusun- dunum. Sundkonur frá A- Þýskalandi hafa verið allsráðandi í þessari sundaðferð á undanfömum árurn. Skinfaxi 13

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.