Skinfaxi - 01.08.1988, Blaðsíða 23
hefur verið nefnt stökk ÍA. Einnig má
nefna Vestra sem fór úr 7. sæti í það 3.
Mjög athyglisvert verður hins vegar að
teljast fall HSK úr4. sæti í fyrra í 15. sæti
nú. Þór í Þorlákshöfn á sem fyrr marga
góða sundmenn en unglingastarfið annars
staðar á HSK svæðinu hefur hins vegar
ekki fylgt eftir að sama skapi. HSK menn
hafa hins vegar hafið mikið uppbyggin-
garstarf eins og þeirra er von og vísa og
verður eflaust ekki langt í að HSK færi sig
upp töfluna að nýju. Eins gekk hinu
efnilega liði USVH ekki eins vel og við
var búist, féll úr 9. sæti í það 14.
HSÞ er hins vegar í jafnri uppsveiflu.
Þeir fóru úr 12. í 9. sæti. HSÞ vann
Norðurlandsmótið í júlí síðastliðnum,
skákaði Oðni frá Akureyri sem hefur ei-
nokað þetta mót á undanförnum árum.
Liðið byggist á fólki úr Völsungi á
Húsavík og Ungmennafélaginu Eilífi í
Mývatnssveit. Það er eftirtektarvert að
Eilífur er líkast til eina félagið úr dreifbýli
Skriðsundsveit Akurnesinga sem setti
niett ípiltaflokki. F.v. GunnarÁrsœlsson,
Arsœll Bjarnason, Óskar Guðbrandsson
°g Eyleifur Jóhannsson.
sem á svo mikið af efnilegu fólki. Yfirleitt
eru hin liðin með fólk af
þéttbýlissvæðum.
Foreldrastarfið
Hn eins og áður sagði voru það
Akurnesingar sem fögnuðu að
'eikslokum og hlýtur Hugi Harðarson að
eiga mikinn heiður skilinn ásamt auðvitað
sundfólkinu sjálfu. Hann náði geysilega
§óðum árangri með Bolvíkinga, fluttist
Akranesliðið fagnar að lokum með glœsilegan bikar í höndum.
síðan til Akraness síðasta vetur og heldur
áfram góðu starfi þar. En það má ekki
gleyma foreldrastarfinu sem hefur haft
geysilega mikla þýðingu á Akranesi.
Foreldrar hafa unnið mikið starf fyrir
félagið, það sama má reyndar segja um
Bolungavík og víðar. Það voru því fleiri
en keppendur og þjálfari sem fögnuðu
sigri á Akranesi að loknu AMI ’88.
1H
Tekið á íflugsundinu. Ottó Karl
Tuliníus úr Óðni frá Akureyri.
Flogið afstað.
Skinfaxi
23