Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Page 5
Kristinn Erlendsson, (rá Þingeyri. Landíökuvifinn „Og um þig vefjast þögul þakkarhcit!" Það mænir á þig mararsjónin grá og manna augu snör og dökk og blá. Hvort finnurðu ekki augnaráðsins afl, sem á þér hvílir bak við hrannarskafl, — þeir eru að leita lands um dimman sjá, sem þá langar til að ná. Þú rennir augum út í myrkrin köld að aðrir megi sjá þinn geislafjöld; þú eykur þrek og kjark hins þreytta manns er þráir höfn hins fyrirheitna lands, er kveður við og kveikir afl í sál, þitt kæra neistarmál. Að mætast augu manns og þín um sund, er mesta hnoss um dimmrar nætur stund, — sem logar tvennir hafi mælt sér mót, og maðurinn fengið rauna sinna bót; því bein er leið þess fleys er vitan fann um fiskarann. Og um þig vef jast þögul þakkarheit, er þinnar birtu vegi maður leit. Þitt leifturstríð er háð um höfin blá og hefir fengið margan til að sjá og landið, sem þeir leituðu oftast að, það er á sínum stað. VÍKINGUR Þín brúnaljós, þau eru ei öðrum veitt en einum þeim, er lögðu á hafið breitt. Þú teygir geislann móti þeirra mund, er manndáð höfðu að sækja á þinn fund, sem lögðu kneri út á djúpsins ál með eld í sál. Um blakka nótt þeim býður góðan dag og blessar þeirra störf og háttalag, er hverfa þeir á burt, þú bendir þeim; þú brennur skærast þeim, sem leitar heim, og hver sem að þig eitt sinn — eitt sinn leit hann um big síðan veit. Að gnæfa hátt, og vera öðrum allt, það æfihlutverk skal ei mörgum fallt. En þú ert stundum eina athvarf hans, sem er að leita í náttmyrkri til lands, og geislinn, sem þú sendir út frá strönd er sól í mannsins hönd. Ef væri ekki viti ljósið þitt, þeim veittist örðug leið um skipið sitt. Hve skammt var stundum eftir enginn veit, er ástarbjarma þína feginn leit, — þá færi kannske margur verri för og fengi önnur svör. En er ekki oft í útskerinu kalt, er um þig leikur hafið grænt og svalt. Hvort finnurðu ekki fara um þig þá þann feginshug: — er bál þitt skipin sjá, sem eru um nótt að leita, leita af dröfn að lands þíns höfn. „Hve skammt var stundum eftir, enginn veit... “.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.