Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 37
t I róðrinum Gamankvæði frá sjómannadeginum Til æfintýra farmanninum liggur opin leið. heimurinn er harla stór með höfin löng og breið þó oft sé sukksamt sjómannslíf um saltan Atlants-ál, er sungið oft og hlegið hátt og drukkin liafsins skál. Skipið skríður dátt, skín hver þanin voð, vélin hefir hátt, hér er knáleg gnoð áfram, áfram nú, enga stundar bið, já, áfram strákar og út á þorskamið. Við rórið stendur skipstjórinn og reykir pipustert rínir út um skágluggann og eyrun eru sperrt, gáir hann á kompásinn með gætni við og við, og gjörist heldur valdsmannslegur yfir andiitið. Hana, hvað er nú — hver fjandinn gengur að? það þarf að setja á kolluna, annað skrúfublað, skildi hún þola það? pað er ekki víst, mér er sama, ef hún hraðar snýst. Pétur gamli vélamaður púar skeggið í það passar ekki í klabbið Jón, því vélin þessi er ný, ég get dável trúað því að kollan þoli það, en þessi vél má ekki nota stærra skrúfublað. Pétur þegi þú, þama karlgarmur, ég þoli ekki alltaf hreint að vera síðastur, þú skalt ekki vera neitt að þræta um það, ég læt setja á mig annað skrúfublað. Upp á dekk í einum hvelli, allir minir menn upp nú strákar, út nú strákar, allir ræs í senn, Réttu Gvendur stampana og farðu í færin Sveinn, Finnur láttu út baujuna og vertu ekki seinn, hálfa ferð ég hafa verð, hana ekkert slór, ég yfir hina alla legg! En sá hauga sjór. Hæ, hæ, hó, hó, hérna slæ éy af, því nú er dræsan öll komin í kaf. Iialló, strákar, hvellum rómi hrópar skipstjórinn það er orðið baujubjart, nú byrjar drátturinn allir þjóta í einum hvelli út úr koiunum, aka sér og geispa hátt svo hvín í reiðanum, tifar skipstjórinn, talstöðina í, það er sama sagan hér, ekkert fiskirí. Halló, Geir! Halló, Geir! Halló þetta er ég. lieyrir þú ekki, ég er að kalla á þig. petta er meira hallærið ég hefi ei verra þekkt, aldrei liefir það verið svona ægilega tregt, það eru eintóm eiturkóð á allri línunni, eintómt hölvað keilurusl og tittakvikindi. pvílikt og annað eins, útkoman hjá mér, það er alveg sama hvar á Sviðinu ég er. V í K 1 N G I JI! Skagamenn skáru í sjó, þeir skulu gjalda þess, skárri er það frekjan, ég skifti, vertu bless. En uppi á dekki er önnur saga, eintómt líf og fjör inn á dekkið veltur ýsa og stærðar golþorskur, og þegar „karlinn“ sjómönnunum segir fréttirnar, þá segir hann, ,þeir íá aldrei bein, í þessar talstöðvar.1 Hæ, hæ, hó, hó, nú höldum við af stað, þeir verða hissa hinir þegar í kvöld við komum að, með sultar-són í míkrófón, er engin synd á sjó ef á lóðinni er af þeim gula nóg. Theodór Einarsson, Akranesi. ÚTVARPIÐ FRÁ SJÓMANNADEGINUM. . Framh. af hls. 22. í þeirri meiningu, að þeir starfi við sjónvarp, eða er þessi þulur, þrátt fyrir merkilegt og ná- kvæmt val útvarpsráðs, ekki betur starfi sínu vaxinn en þetta. Hvar var Helgi Hjörvar á Sjó- mannadaginn? Hvers vegna fékk útvarpsráð hann ekki til að gegna þessu verki? Það ber flestum saman um það, að Helgi Hjörvar er manna snjallastur til að vera þulur á slíkum útihátíðum, og engan hef ég heyrt sem betur hefir tekizt með það hlutverk. Þegar þessu var nú lokið, voru menn sárgram- ir yfir þessurn mistökum, og því, að hafa sleppt svefni og hvíid fyrir það. Öðru máli var að gegna með útvarpið um kvöldið. Það tókst með prýði vægast sagt. Dagskrárliðirnir voru prýðilegir, og mjög ánægjulegt á þá að hlusta sem þar fluttu mál og söng. Nokkurra truflana gætti, og komu þær í veg fyrir að við gætum notið tón- verks Sigíúsar Halldórssonar við kvæði Magn- úsar Stefánssonar „Stjáni blái“, og þótti okkur það leitt. En það er svo margt sem við sjómenn verðum að sætta okkur við að fara á mis, að við fjölyrðum sjaldan um slíka hluti, en vonum jafnframt að við fáum tækifæri til að hlusta á þetta verk einhverntíma seinna, við betri skil- yrði. Ef til vill næsta Sjómannadag. Gamanvísurnar og gamanþátturinn vakti sér- staka hrifningu, með hláturgusum.. Að lokum vil ég láta ánægju mína í ljós, yfir vaxandi þátttöku í hátíðahöldum úti um land, og þeim skilningi sem sjómenn virðast vera að fá á nauðsyn þess að vanda til þessa hátíðadags okkar. Svo aðeins eina spurningu til stjórnar Sjó- mannadagsins. Hverjum voru þau handaskol að kenna, sem urðu í framkvæmd kappróðursins, og telur hún ekki varhugarvert að flaustra svo með málin ár eftir ár, með tilliti til þátttöku í kappróðri og öðrum íþróttaliðum dagsins, á kom- andi árum? ' Orri. 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.