Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 47
— Dtemdu menn ekki eftir því, live mikla hœfi-
leika þeir hafa, heldur eftir því, hvernig þeir nota þá.
— Lygin er oft svo klœdd, að hún getur verið í
fínustu samkvæmum. En sannle’kurinn þar á móti
fær ekki að koma þar inn stundum, liversu vel
sem hann cr búinn.
— Uppspretta til hamingju og blessunar er í
voru eigin iijarta, þeim, sem leitar eftir henni annars-
staðar, fer líkt og fjárhirðir þeim, sem fer land úr
landi til að leita eftir lambi, sem hann þykist hafa
misst, en gætir þess ekki, að hann hefir alla leið-
ina borið það í barmi sínum.
— Menn segja, að konurnar stjórni heiminum eða
ráði yfir okkur karlmönnunum. Er þá ekki liyggi-
legt, að gera þær svo upplýstar og fullkomnar, sem
kostur er á? þeim mun skynsamlegar stjórna þær
heiminum og oss.
— Heimurinn er ekki svo heimtufrekur sem orð
leikur á; hann krefst ekki meira af mönnum en að
þeir komi fram nokkurn veginn sómasamlega.
Hversvegna er rautt Ijós haft í vitum og á skip-
um? Af því rautt ljós sést lengri veg, en ijós með
nokkrum öðrum lit, en næst því kemst græni lit-
urinn. í heiðríku og hreinu lofti sést rauða ljósið
5,5 km., grænt 4% km., en gult ljós sést aðeins 2%
km. Bláhvítt ljós kemst næst græna og sést 4 km.,
það er oftast notað við skiftispor járnbrauta.
Engir cru jafn ákafir að ná í leyndarmál annara,
eins og þeir, som lausmálgir eru. þeir eru líkir
óráðsmönnunum, sem lána peninga hjá öðrum og
fleygja þeim út í óþarfa.
það er auðveldara að þóknast yfirboðurum sínum
on þeim, csm undirgefnir cru.
— Tóbak var fyrst flutt frá Vesturheimi til Eng-
lands 1555, en lil Spánar nokkrum árum fyrr.
VÍKINGUR
þegar þú fæddist grést þú, en nánustu ástvinir
þínir voru fagnandi. Lifðu svo, að þú á dauða-
stundinnni getir farið héðan fagnandi en aðrir séu
grátandi fvrir burtför þína.
— Menn hafa gott af að ferðast, til þess að kynria
sér skoðanir og verk annara. Sjóndeildarhringurinn
stækkar og sjálfbyrgingsskapurinn minnkar.
— Sá sem hefir vit á að skýla heimskú sinni er
ekki heimskur.
— Sá sanni ríkidómur mannsins er hið góða, sem
hann gerir. þegar hann deyr, spyrja mennirnír:
„Iive mikinn auð lét hann eftir sig?“ En englarnir
spyrja: „Lét hann eftir sig mikið af góðverkum?"
■— Eldspítur, líkar því sem þær eru nú voru fyrst
notaðar árið 1833.
— Vasaúr voru fyrst búin til af Pétri Henlein í
Núrnberg á öðrum tug sextándu aldar. Voru þau
lík eggi í lögun og þvi nefnd „eggin frá Núrnberg."
— Spil voru uppfundin 1380 til skcmmtunar Karli
III. Frakkakongi.
— Kaffi var fyrst flutt til Miklagarðs árið 1517,
og 34 árum síðar var þar reist liið fyrsta opinbera
kaffisöluhús. Um miðja 17. öld komust á kaffihús
á Englandi og Frakklandi, og i Hamborg 1679.
Aldrei er of seint að læra það, scm gott og gagn-
legt er. Engin miiikun er að því, að læra svo lengi
sem við erum fáfróðir. En það er sama sem: svo
lengi sem við lifum.
Trúlofunarhringar,
BORÐBÚNAÐUR,
TÆKIFÆRISGJAFIR í góðu úrvall.
Guðm. Andresson, gullsmiður,
Laugaveg 50 — Slmi 3769
47