Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Blaðsíða 7
Hér var beitt hinni miskunnarlausu tangar- sókn. Njósnað um hverja hreyfingu síldarinn- ar, og síldarskipin kepptust um að leita henn- ar uppi hvar sem hennar varð vart. Reynt var að einangra síldarherina hvern frá öðrum. Hraðbátarnir voru sendir út með næturnar, og látnir sækja að torfunum frá tveim hliðum í senn, króa þær af og uppræta hvar sem hægt var að koma því við. Þannig er hver síldar- Háfað upp úr nótinni, stóru kasti á togara. - 1 fylkingin eftir aðra tekin til fanga. Þessir fangar eru síðan miskunnarlaust hávaðir upp í síldarskipin við mikinn fögnuð sigurvegar- anna, og síðan keyrt með þá beint í grafirnar. Meðferðin á þessum föngum er vægast sagt hroðaleg. Miklu verri en nokkrum áróðurs- manni gæti dottið í hug að brigsla óvininum um. Það er ekki nóg að síldin sé þvæld og það sé murkað úr henni lífið á hinn herfilegasta hátt, heldur er hún líka knúsuð og möluð eftir að hún er dauð, og að lokum er hún brædd. Svona er síldveiðin, og þannig hefur hún ver- ið frá því fyrsta. Líkust miskunnarlausri nú- tímastyrjöld. Þar sem öll tækni er notuð og alls staðar barist til úrslita. Þar sem hvert hlé er notað til að safna kröftum til nýrra átaka. Allar fregnir síldarbardagans í ár, hafa ver- ið tómar siguríregnir það sem af er. Eftir því sem fleiri síldarfarmar hafa borizt að landi, hafa fyrirsagnir blaðanna orðið gleiðletraðri um hin miklu uppgrip. Satt er það, að síldveiðin hefur verið mikil það sem af er. Síldin hefur verið næi’tæk og það hefur gengið fremur vel að eiga við hana. Hitt er svo annað mál, hvort allir eru jafn ánægðir, og bera jafn góðan hlut frá borði. Sum skip eru þegar, eftir þriggja vikna úthald, búin að fiska fyrir á þriðja hundrað þúsund krón- ur, önnur fyrir miklu minna. Sumum gengur vel, öðrum miður. Sumir eru heppnir, aðrir óheppnir. Stundum getur jafn- vel veiðisældin orðið að tjóni. Einstaka skip hafa fengið það stór köst, að síldin hefur far- ið í kaf með næturnar, og í einu tilfelli hvolft bátunum með mönnum og öllu saman. Nótabát- ar hafa brotnað og nætur orðið ónýtar. Slík ólán má líkja við missi hergagna í hendur óvin- inum, og þau töp, sem af því hljótast, vinnast varla upp, meðan á veiðunum stendur. Samtöl síldveiðiskipstjóranna gefa góða hug- mynd um, hvernig veiðarnar ganga og hvaða móður er í mönnum á hverjum tíma. Þegar að síldin er þunn, segja þeir að sjórinn sé eitt krap eða síldargrautur. Síldin vaði allt í kring um skipin og fari ekki niður, þótt að stímað sé í gegnum hana. Það sé tilgangslaust að kasta. — Sama hvort menn kasti á allt eða ekkert. Þegar um kraft síld er að ræða, kemur ann- að hljóð í strokkinn. Þá segja menn, að það hafi verið mikil síld uppi og góðar torfur. Einn seg- ir, við fengum kast,, sem ætlaði alveg að drepa okkur, við vorum eitthvað sex tíma að brasa við það og skaðskemdum nótina. Annar segir: við lentum í stóru kasti og náð- um um 400 málum, nótin sökk með það sem eftir var. Nú erum við með eitthvað þúsund mála kast á síðunni, eða guð veit hvað. Við ná- um litlu inn af nótinni, það eru ennþá eftir margir bálkar í öðrum bátnum. Svo verður hljóðið verra, ef illa gengur að fylla skipið. Þá hafa þeir til með að segja: Mér lízt andskotalega á þetta, mig vantar 200 mál ennþá. Það gengur djöfullega hjá mér, ann- að hvort er það ekki neitt eða aðeins tveir háf- ar. Hjá togurunum eru tilkynningarnar stuttar og laggóðar. Eins og t. d. í kastinu áðan 1000 Aflinn fluttur a3 landi. mál, erum í bátum. Eða — vorum að koma út, lönduðum 2800 málum. Þegar svona mikið berst að af síldinni hefst ekki undan að bræða. Síldin kasast saman í verksmiðju þrónum þangað til ekki kemst VIKINGUR 7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.