Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1942, Side 46
Morguninn eftir skjótumst við snöggvast inn í Mykonossundið og leggjum þar tvö duflasvæði og verðum ekki varir við óvinaskip. Þar eð hér ber ekkert á skipaferðum, höldum við um kvöld- ið til Dorosunds til þess a ðgera tundurskeyta- árásir, því að nú var öllum tundurduflunum lagt. Næsta dag gerum við ýmsar mishepnaðar tilraunir til árása. Fyrsta skipið, sem við sjáum er spítalaskip, sem við megum ekki skjóta á. Því næst kemur brezkt beitiskip, sem er svo hraðskreitt, að við náum því ekki. Flutninga- skip virðast ekki vera til á hafinu þann dag. daginn eftir hinn 31. október, er aftur á móti mikið um skipaferðir. Um nóttina fer stórt spítalaskip, a. m. k. 20 þús. tonn, framhjá okkur á suðvestur leið. Kl. 7 liggjum við í árásarstöðu og komum auga á tvö gufuskip, sem voru í fylgd með brezkum tundurspilli, sennilega á leið til Saloniki með lið og hergögn. En heppnin var ekki með okkur. Því einmitt þegar við ætlum að fara að skjóta á annað skipið, stýrir það beint á U 73, svo að við verðum að kafa í skyndi niður á 20 metra dýpi, og við missum þetta ágæta tækifæri til árásar. Þegar við rekum sjónpípuna upp úr tíu mínútum síðar, eru bæði skipin farin framhjá, og engin leið að senda þeim tundurskeyti. Svo við verðum enn að bíða átekta! Um hádegisbilið sézt gufuskip í norðaustri. Og í þetta sinn tekzt okkur að komast í skot- færi, þótt tundurspillir, sem var í fylgd með því, sigli í sífellda hringi, til þess að hindra kafbátaárás. Kl. 1 hleypum við af tundurskeyti á 300 metra færi, en það heyrist engin spreng- ing, svo annaðhvort hefur skeytið lent undir skipið eða framhjá. En við sjáum fljótt, að skipið hefur orðið vart við tundurskeytið, því það dregur upp merkja- veifu og siglir brott. Þar með fór tækifærið þann dag. Og skipin sigla úr augsýn. En í stað- inn koma varðskipin nær og gera okkur lífið leitt! Eftir erfitt kvöld náum við um miðnættið til eyjarinnar Naxos, og siglum áfram gegnum eyjamergðina til Maleashöfða, til þess að hafa þaðan eftirlit og finna heppilegan skotspón fyr- ir seinna tundurskeytið okkar. En nú var orðið kalt í veðri og vindur hvass, og það kom sér nú vel, eftir að hafa verið heila viku í baðfötum, og of heitt samt, því við vorum að kalla alltaf í kafi. Bið okkar við Maleashöfða varð jafn árang- urslaus, og hinn 2. nóvember fórum við burt úr Eyjahafi, til þess að leita að herfangi fyrir vestan eyna Cerigo í Cervisundi. Árang- SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband Islands. Ábyrgðarmaður: Halldór Jónsson. Ritnefnd: Hallgrímur Jónsson, vélstjóri. ÞorvartSur Björnsson, hafnsögumaður. Henry Hálfdánsson, loftskeytamaður. KonrátS Gíslason, stýrimaður. Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangurinn 15 krónur. Ritstjórn og afgreiðsla er a Bárugötu 2, Reykjavík. Utanáskrift: „Víkingur", Pósthólf 425, Reykjavík. Sími 5653. urslaust! Fyrst 4. nóvember, þegar við erum komnir alllangt norður á bóginn á heimleið, hittum við á 36. breiddargráðu allmörg varð- skip og flutningaskip. Fallegt 7 þúsund tonna gufuskip fer fram úr okkur, og við hefðum get- að grátið yfir seinaganginum, sem eyðileggur hvert tækifærið á fætur öðru. Auðvitað slapp það. Aftur á móti ráðumst við klukkustundu seinna á tómt 2 þús. tonna skip. Tundurskot á 600 metra færi, enginn árangur. Það er senni- legt, að tundurskeytið okkar, sem er miðað við 31/2 meter undir yfirborði, hafi farið undir kjölinn. Það er nú ekki um frekari hernaðaraðgerðir að ræða, 0g við verðum að halda heimleiðis. Það er ekki hægt að heyja stríð gegn stórskip- um með einni smáfallbyssu. Stinningskaldi skilar okkur í gegnum Otranto sundið hinn 6. nóvember. Við sjáum að vísu nokkra togara á verði, en þeir velta svo mikið í rótinu, að það er enginn furða, þótt þeir sjái okkur ekki. Við verðum að vísu að halda okk- ur í kafi í 3þ^ klukkustund, til að forðast tund- urspilli og einn togara, sem kom of nærri okk- ur, en það þykir nú ekki mikið í Otrantosundi. Við komumst í raun og veru í gegnum allar varðlínur á einni morgunstund, og morguninn eftir komum við til Bocche di Cattaro í grenj- andi nóvemberrigningu. GÚMMÍSTAKKAR, húðaðir báðum megin, þeir sterkustu, sem hér hafa sézt, fást í VOPNA, Aðalstræti 16. 46 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.