Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1949, Side 2
Guöni Þóröar8on, blaöamaOur:
Síidarborgin
um hausf
Hér er því lýst hvernig umhorfs
er á Siglufirði um haust, þegar síld-
in hefur brugðizt. — Kyrrð og mann-
laust á bryggjum og plönum, stúlk-
urnar horfnar úr bröggunum, en
verksmiðjuliallirnar leyndardómsfull-
ar í einverunni.
Síldarvertíðinni er iöngu lokið.
Snæviþaktir fjallatindarnir speglast
í haffletinum og auka á tign og feg-
urð hinnar hrikalegu náttúrufegurð-
ar, sem skapar umhverfi Siglu-
fjarðar.
Siglufirði.
Til að sjá ofan úr loftinu er borg-
in hrein og hvít, þar sem hún teygir
anga sína út á kyrran sólskins-
glampandi hafflötinn. Jafnvel reyk-
háfarnir eru hreinir og búnir að
gefast upp við að blása svörtum og
þungum mekkjum í loft upp. Þeir
gnæfa við himin einmanalegir í til-
gangsleysi sínu.
Fjöllin ynæfa hvít yfir slldarbænum.
Siglufjöröur og síldin.
En Siglufjörður er samt sem áður
borg silfurfisksins og þó að sagt sé
að engin síld hafi veiðzt, ber ekki
að taka það bókstaflega, því það
sem engin síld kallast á Siglufirði
getur talizt mikil síld þar sem síldin
er sjaldséður gestur. Borg silfur-
fiskins ber, þegar betur er að gáð,
líka á kyrrum haustdegi, nokkur
merki síldarinnar og liðinnar síldar-
vertíðar, þó að veiðin hafi að mestu
brugðizt.
Síldartunnustaflarnir eru minnis-
merki liðins sumars. Þeir gefa að
vísu alranga mynd af afkomu sum-
arsins. Mjölskemman er tóm og lítið
lýsi. Áherzlan var lögð á söltunina,
sem er verðmætasta hagnýting síld-
arinnar.
Kyrrlát borg og hljóö.
Gullborgin er kyrrlát og hljóð eins
og mannlaust og yfirgefið vígi eftir
tapaðan leik. Hersveitirnar eru
komnar fram hjá. — Það veiddist
engin síld í sumar.
Haust á
2B4
VÍ K I N G U R